Skoðun

ESB, Bretar og við

Einar Gunnar Birgisson skrifar um Evrópumál:

Það er ljóst að Ísland sækir um aðild að ESB við fyrsta tækifæri. Þetta vita allir, bæði við, ESB og Bretar. ESB er eina lausnin úr þessu fyrir okkur, en við verðum að vara okkur mjög á Bretum. Þeir munu vísast vinna gegn okkur bak við tjöldin og gera okkur lífið leitt.

Það er augljóst að við getum ekki sæst við Breta fyrr enn Gordon Brown fer frá völdum. Við megum ekki vanmeta Breta. Við þurfum strax að byrja að kynna málstað okkar og reyna að sannfæra aðrar ESB-þjóðir um að Bretar stunduðu efnahagsleg hryðjuverk gegn okkur. Við þurfum að meta tjón okkar vegna framgöngu Breta og útbúa greinargerð um þau mál og senda hana öðrum ESB-þjóðum. Síðan sendum við Bretum reikninginn fyrir tjóninu. Ef þeir borga ekki eða semja þá lögsækjum við þá. Að hika er sama og að tapa og linkind hefnir sín. Hún hefnir sín alltaf.

Við þurfum að sýna ESB að við séum stolt og hörð í horn að taka. Ríkisstjórnin vogar sér ekki að falla frá kröfum á hendur Bretum vegna tjóns sem þeir hafa unnið okkur. Við erum þegar aðhlátursefni um allan heim fyrir að geta ekki losað okkur við Davíð Oddsson úr Seðlabankanum. Við verðum enn meira aðhlátursefni ef við föllum frá kröfum á hendur Bretum. Niðurlægingin næði áður óþekktum hæðum.

Það er líka niðurlæging fyrir þjóðina að forsætisráðherra tekur Davíð Oddsson fram yfir þjóð sína. Algjör skömm og hneisa og alveg óþolandi. Við erum öskureið. Davíð á mikla sök á atburðarásinni síðustu vikurnar en ekki þar á undan. Raunverulega ábyrgð á hruninu ber forsætisráðherra. Hann er stjórnandinn, hann vissi hvert stefndi og nú gerir hann fátt annað en að telja okkur trú um að hann sé alveg blásaklaus af ástandinu. Það vantar bara geislabauginn. Sá maður ber mesta ábyrgð af öllum. Forsætisráðherra á að axla ábyrgðina og segja af sér. Hann er rúinn trausti. Þorgerður Katrín getur tekið við embættinu.

Höfundur er áhugamaður um stjórnmál.




Skoðun

Sjá meira


×