Kaupþing frestar bókhaldi í evrum Óli Kristján Ármannsson skrifar 8. mars 2008 06:00 Sigurður Einarsson Stjórnarformaður Kaupþings telur misráðið að lækka laun stjórnenda og stjórnarmanna stórra banka. Fremur ætti að gera vel við þá og tryggja sér þar með hæfasta fólkið. Fréttablaðið/Pjetur
Kaupþing hefur frestað því til næsta árs að breyta starfrækslumynt bankans í evrur og dregið til baka umsókn þar að lútandi. Ekki reynir á úrskurð fjármálaráðherra. Á aðalfundi bankans í gær samþykktu hluthafar að færa hlutabréf bankans yfir í evrur. Breytingu starfrækslumyntar Kaupþings úr krónum í evrur hefur verið frestað þar til í janúar á næsta ári samkvæmt ákvörðun stjórnar. Þetta kom fram á aðalfundi bankans í gær. Bankinn hefur dregið til baka umsókn sína um breytinguna sem taka átti gildi í ár. Því reynir ekki á ákvörðun fjármálaráðherra varðandi stjórnsýslukæru sem bankinn lagði fram eftir að umsókninni var hafnað af Ársreikningaskrá. Bankinn hefur þó langt því frá gefið upp á bátinn fyrirætlanir um að færa sig yfir í evrur. Aðalfundurinn samþykkti í gær að hlutafé bankans skyldi fært yfir í evrur. „Ríkisstjórn Íslanda vinnur ötullega að því að gera möguleg viðskipti með hlutabréf í erlendri mynt fyrir árslok. Stjórnin telur því viðeigandi að breyta starfrækslumyntinni og hlutabréfaskráningunni á sama tíma,“ segir Sigurður Einarsson, stjórnarformaður bankans, en í ræðu hans á fundinum kom jafnframt fram að þrátt fyrir mikilvægi breytingar starfrækslumyntarinnar væri óvarlegt væri að gera of mikið úr henni, því bankinn beiti markaðsvörnum sem kæmu í veg fyrir að sveiflur á gengi krónunnar hefðu áhrif eiginfjárstöðu bankans. Á aðalfundinum var stjórn bankans jafnframt heimiluð útgáfa breytanlegra skuldabréfa að upphæð 1,5 milljörðum evra, en slíkum bréfum má að skilyrðum uppfylltum breyta í hlutabréf, auk þess sem heimiluð var hlutafjáraukning til nýrra hluthafa upp á allt að 1.750 milljónir króna að nafnverði. Aðgerðirnar eru til að auka svigrúm við fjármögnun. Kaupþing greiðir síðar í mánuðinum út arð til hlutafa upp á 14,8 milljarða króna, en það samsvarar 20 krónum á hlut, eða 21 prósenti af hagnaði síðasta árs. Kaupþing fór ekki að fordæmi Glitnis sem á aðalfundi sínum fyrir nokkru tilkynnti um lækkun þóknunar stjórnarmanna og forstjóra. Hjá Kaupþingi fá stjórnarmenn greiddar 400 þúsund krónur á mánuði fyrir setuna og formaður stjórnar 800 þúsund krónur. Í hádegisviðtali Markaðarins við Sigurð Einarsson á Stöð 2 í gær kom fram að honum finnst röng stefna að lækka laun stjórnar og stjórnenda, jafnvel þótt fjármálaskilyrði kölluðu á aðhald í rekstri bankans, en að því segir hann líka stefnt. „Ef menn vilja hafa óháða, faglega og metnaðarfulla stjórnarmenn þá get ég ekki séð að umbun eigi að vera lægri en hún er.“ Í máli hans kom jafnframt fram að miðað við starfsmannaveltu mætti allt eins gera ráð fyrir að skorið yrði niður í mannahaldi Kaupþings um sem næmi allt að 150 stöðugildu, enda væri ljóst að skorið yrði niður hjá öllum bönkunum. Sigurður hafnar því þó að krísa sé hjá Kaupþingi þótt erfiðleikar steðji víða að á fjármálamörkuðum. „Ég veit ekki um annan banka í Evrópu sem er í betri stöðu en Kaupþing hvað varðar laust fé,“ segir hann og bendir á að síðasta ár hafi arðsemi eigin fjár bankans numið 23,5 prósentum, vöxtur hafi verið góður og starfseiningar gangi vel.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Viðskipti innlent Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur „Eitt sinn var ég ekki svo lánsöm að tilheyra stóru vinkonusamfélagi“ Atvinnulíf Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Fleiri fréttir Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes Sjá meira