Horft fram á veginn Finnur Sveinbjörnsson skrifar 12. nóvember 2008 06:00 Íslenska þjóðin gengur nú í gegnum mikinn ólgusjó. Atvinnulíf og heimili í landinu hafa orðið fyrir miklu áfalli. Við erum ekki fyrsta þjóðin sem gengur í gegnum alvarlega fjármálakreppu. Aðrar þjóðir hafa lent í svipuðum hremmingum og unnið sig út úr þeim. Það munum við einnig gera. Til þess þarf þó að ná sátt við alþjóðasamfélagið. Mörgum spurningum er ósvarað um hvernig og hvers vegna svona er komið fyrir þjóðinni. Stjórnvöld hafa lofað að svara verði leitað. Það mun taka nokkurn tíma og líkast til verður öllum spurningum seint svarað og skoðanir verða skiptar. Tilgangur slíkrar rannsóknar hlýtur að vera tvíþættur. Annars vegar að kanna hvort einhvers staðar leynist saknæmt athæfi eða vítavert andvaraleysi. Hins vegar að læra af því sem aflaga fór til að hjálpa okkur að móta nýtt og betra efnahagskerfi til framtíðar. Sú endurreisn þolir enga bið. Stofnun nýrra viðskiptabanka á rústum þeirra sem ríkið yfirtók er mikilvægur liður í henni. Það eru mikil umskipti framundan í íslensku atvinnulífi. Langvarandi ójafnvægi í þjóðarbúskapnum olli því að of mikið var fjárfest í verslun og þjónustu en of lítið í gjaldeyrisskapandi greinum. Á því þarf nú að verða breyting. Nýtt bankakerfi gegnir þar lykilhlutverki. Á næstu misserum má búast við að ýmis álitamál í rekstri gömlu bankanna verði til umræðu. Það er hins vegar nauðsynlegt að þau mál trufli ekki það uppbyggingarstarf sem nú er hafið í nýjum bönkum. Ég og annað starfsfólk í Nýja Kaupþingi banka viljum horfa einbeitt til framtíðar, þó þannig að við drögum lærdóm af fyrri reynslu en látum hana ekki verða okkur fótakefli sem hindrar nýja sókn. Skilvirkir verðbréfamarkaðir nauðsynAð ýmsu leyti er hagkerfið í hliðstæðri stöðu og á hægvaxtarskeiðinu 1988-1994. Þá eins og nú skiptir höfuðmáli að styrkja innviði hagkerfisins og horfa fram á veginn. Hlutabréfamarkaðurinn gegndi mikilvægu hlutverki í bæði hagræðingu og nýsköpun á Íslandi þegar við brutum okkur leið til bættra lífskjara. Fyrst með því að greiða fyrir hagræðingu í sjávarútvegi. Síðan með því að sjá sprotafyrirtækjum fyrir fjármagni. Loks með því að greiða fyrir einkavæðingu ríkisfyrirtækja.Allt eru þetta þættir sem búast má við að þörf verði fyrir á næstu árum, ef vel á að fara. Því höfum við í Nýja Kaupþingi ákveðið að leggja sérstaka áherslu á þjónustu sem tengist verðbréfamarkaðnum, einkum fyrirtækjaráðgjöf, markaðsviðskipti og eignastýringu. Þessir þjónustuþættir eru gjarnan áberandi á uppgangstímum en mikilvægi þeirra er í raun enn meira þegar illa árar og leggja þarf grunn að nýrri sókn. Samhliða þessari starfsemi mun bankinn að sjálfsögðu leggja allan sinn fjárhagslega kraft og dýrmæta þekkingu og reynslu starfsfólks í að vinna með heimilum og fyrirtækjum að endurskipulagningu á fjármálum þeirra.Ekki er ólíklegt að þróunin á næstu árum í Kauphöll Íslands verði með svipuðu móti á næstu árum og varð á árunum 1990-2001 þegar mikill fjöldi fyrirtækja úr mismunandi atvinnugreinum var skráður. Reynslan frá öðrum löndum sýnir einnig að verðbréfamarkaður styður við nýsköpun og heilbrigt atvinnulíf.Nýja Kaupþing styður uppbygginguNýja Kaupþing mun styðja við íslenska hlutabréfamarkaðinn eftir fremsta megni. Það má búast við verulegum samdrætti í þessari starfsemi fyrst um sinn. Á móti má reikna með að skuldabréfamarkaður verði mikilvægari en oft áður.Hlutabréfamarkaðurinn hér á landi hefur ekki uppfyllt þær vonir sem til hans voru gerðar sem farvegur langtímasparnaðar. Að einhverju leyti er þar um að kenna að skráð félög í Kauphöllinni voru einsleit, ýmist fjármálafyrirtæki eða fjárfestingarfélög sem fjárfestu fyrst og fremst í fjármálafyrirtækjum. Nú þegar sú atvinnugrein hefur hrunið hefur eftirtekjan orðið eftir því. Reynsla annarra landa sýnir þó að fjárfesting í hlutabréfum hefur verið góð viðbót í eignasöfn heimila og lífeyrissjóða til lengri tíma litið. Þess vegna mun Kaupþing leggja sitt af mörkum til að endurreisa hlutabréfamarkaðinn og tryggja viðgang skuldabréfamarkaðarins.Það er mikið verk framundan hjá starfsfólki nýju bankanna vegna djúprar efnahagslægðar og þess mikla endurreisnarstarfs sem nú fer í hönd. Þótt starfsemi eldri bankanna sé umdeild, er gildi öflugrar fjármálaþjónustu það ekki. Reynsla víða um lönd sýnir að endurreisn þróttmikils atvinnulífs verður ekki nema fyrir tilstuðlan háþróaðs fjármálakerfis. Á Íslandi hefur myndast verðmæt þekking í fjármálaþjónustu og hún má ekki glatast.Höfundur er bankastjóri Nýja Kaupþings banka. Nýja Kaupþing styður uppbygginguNýja Kaupþing mun styðja við íslenska hlutabréfamarkaðinn eftir fremsta megni. Það má búast við verulegum samdrætti í þessari starfsemi fyrst um sinn. Á móti má reikna með að skuldabréfamarkaður verði mikilvægari en oft áður.Hlutabréfamarkaðurinn hér á landi hefur ekki uppfyllt þær vonir sem til hans voru gerðar sem farvegur langtímasparnaðar. Að einhverju leyti er þar um að kenna að skráð félög í Kauphöllinni voru einsleit, ýmist fjármálafyrirtæki eða fjárfestingarfélög sem fjárfestu fyrst og fremst í fjármálafyrirtækjum. Nú þegar sú atvinnugrein hefur hrunið hefur eftirtekjan orðið eftir því. Reynsla annarra landa sýnir þó að fjárfesting í hlutabréfum hefur verið góð viðbót í eignasöfn heimila og lífeyrissjóða til lengri tíma litið. Þess vegna mun Kaupþing leggja sitt af mörkum til að endurreisa hlutabréfamarkaðinn og tryggja viðgang skuldabréfamarkaðarins.Það er mikið verk framundan hjá starfsfólki nýju bankanna vegna djúprar efnahagslægðar og þess mikla endurreisnarstarfs sem nú fer í hönd. Þótt starfsemi eldri bankanna sé umdeild, er gildi öflugrar fjármálaþjónustu það ekki. Reynsla víða um lönd sýnir að endurreisn þróttmikils atvinnulífs verður ekki nema fyrir tilstuðlan háþróaðs fjármálakerfis. Á Íslandi hefur myndast verðmæt þekking í fjármálaþjónustu og hún má ekki glatast.Höfundur er bankastjóri Nýja Kaupþings banka. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ekkert plan, engin sleggja Illugi Gunnarsson Skoðun Hvað vilja ólígarkarnir að þú kjósir 29. ágúst?" Jón Þór Ólafsson Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun Afhverju ég ætla að segja JÁ Sverrir Páll Einarsson Skoðun Hvað ef þú hefur rangt fyrir þér? Eyþór Eðvarðsson Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Kaupmáttur þjóðanna í Meistaradeild Evrópu Stefán Ólafsson Skoðun Þetta er líka sagt af mikilli virðingu Ólafur Margeirsson Skoðun Skoðun Skoðun Lyfjamál og ESB Einar Magnússon skrifar Skoðun Aðilar vinnumarkaðar munu áfram gera kjarasamninga innan ESB Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Lokum ekki dyrum Þorsteinn Ólafsson skrifar Skoðun Vellystingar á yfirdrætti Elías Pétursson skrifar Skoðun Nýsköpun í Evrópu: Heildarmyndin sem Hilmar sleppur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Langmæðgur vilja sjá – frá Flatey til den Haag Guðrún Marta Jónsdóttir ,Guðrún Marta Ársælsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki bara fólkið sem þarf að spila með Andri Reyr Haraldsson skrifar Skoðun Hvað þýðir já fyrir bændur? Stefán Magnússon skrifar Skoðun Ef gervigreind sparar okkur tíma — hver fær hann? Stefán Atli Rúnarsson skrifar Skoðun Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl skrifar Skoðun Hverjir óttast Evrópusambandið? Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Við erum á plastbát í ólgusjó Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Áskorun til samningsaðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um endurskoðunneysluvísitölu og brottfall húsnæðisliðar úr neysluvísitölu skrifar Skoðun ESB, afsal eða útvíkkun á fullveldi? Karl Andersson Claesson skrifar Skoðun Kaupmáttur þjóðanna í Meistaradeild Evrópu Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Nei-fólkið mitt, þið eruð svo sæt þegar þið hlýðið Viktor Ólason skrifar Skoðun Fyrirhuguð hækkun á máltíðum fyrir eldra fólk í Reykjavík Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Ekkert plan, engin sleggja Illugi Gunnarsson skrifar Skoðun Þetta er líka sagt af mikilli virðingu Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Afhverju ég ætla að segja JÁ Sverrir Páll Einarsson skrifar Skoðun Hvað vilja ólígarkarnir að þú kjósir 29. ágúst?" Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Hvar er heilbrigðiskerfið mitt? Gunnhildur Erla Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvað ef þú hefur rangt fyrir þér? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Kolkrabbinn, sneiðarnar og eyðing byggðarinnar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Sjá meira
Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun
Skoðun Aðilar vinnumarkaðar munu áfram gera kjarasamninga innan ESB Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar
Skoðun Langmæðgur vilja sjá – frá Flatey til den Haag Guðrún Marta Jónsdóttir ,Guðrún Marta Ársælsdóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl skrifar
Skoðun Áskorun til samningsaðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um endurskoðunneysluvísitölu og brottfall húsnæðisliðar úr neysluvísitölu skrifar
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun