Kaupþing tapar á þorski 19. apríl 2008 18:50 Höfuðstöðvar Kaupþings
Fyrsta tilraunin til að rækta lífrænan þorsk er fyrir bí eftir að fyrirtækið No Catch á Hjaltlandseyjum varð gjaldþrota. Dótturfélag Kaupþings fjármagnaði verkefnið að hluta og tapaði rúmum tveimur milljörðum króna á því. Miklar vonir voru bundnar við verkefnið en No Catch var fyrsta lífræna þorskeldið sem hleypt var af stokkunum. Tilraunin var svar umhverfisverndarsinna gegn offveiði á þorski sem sögðu að þorskeldið markaði vatnaskil í sjálfbærum sjávarútvegi. Miklu var kostað í markaðssetningu á afurðinni og voru stórstjörnur á borð við Demi Moore og Gordon Ramsey fengnar til að votta gæði hennar. En nú, aðeins þremur árum eftir að No Catch hóf rekstur er ævintýrið úti og það eina sem situr eftir eru skuldir upp á 40 milljónir punda, rúmlega sex milljarða íslenskra króna. Nú starfa um 70 manns við þorskeldið á Hjaltlandseyjum en um 3400 tonn af þorski eru eftir í kvíunum sem fara á markað fyrir lítinn pening næstu mánuði. Eftir það ríkir óvissa um framtíð þorskeldis á Hjaltlandseyjum. Í breskum fjölmiðlum segir að dótturfélag Kaupþings í Bretlandi, Kaupþing Singer og Friedlander, hafi tapað um 15 milljónum punda á verkefninu, eða um 2,3 milljörðum króna. Haft er eftir skiptaráðenda bankans að framleiðslukostnaður hafi farið úr böndunum og að stjórnedur fyrirtækisins hafi gert mörg mistök í rekstrinum. Segir hann jafnframt að fyrirtækið hafi ekki átt sér viðreisnar von. Annar lykilfjárfestir, Milestone Captial sem er alls óskylt hinu íslenska Milestone, er sagt hafa tapað 25 milljónum punda. Hluti tapsins gæti þó gengið til baka því norskir fjárfestar hafa sýnt áhuga á að kaupa eignir fyrirtækisins. Forsvarsmenn No Catch eru þó ekki sáttir við niðurstöðu mála. Segja þeir að á þessu ári hafi áætlanir gert ráð fyrir að reksturinn næði jafnvægi og ekki væri langt í að það skilaði hagnaði.
Mest lesið Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Viðskipti erlent Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Viðskipti innlent Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Viðskipti innlent Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Fleiri fréttir Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Sjá meira