Laugardalshöll breytist í skemmtistað 2. júní 2008 17:45 Daníel Ágúst Haraldsson verður í stuði með Gus Gus þann 16.júní
GUS GUS og David Guetta koma fram á stærstu tónleikum þessa árs í Laugardalshöll þann 16.júní. Um er að ræða einstakan tónlistarviðburð sem aldrei áður hefur verið settur upp á Íslandi. Í aðeins eitt kvöld verður Laugardalshöll breytt í stærsta skemmtistað á Íslandi og verður engu til sparað við að gera þennan viðburð að einhverju því eftirminnilegasta í Íslensku tónleika- og skemmtanalífi. 18 ára aldurstakamrk verður sett þetta kvöld í Höllinni, þar sem gleðin mun standa fram á nótt og verður áfengissala fyrir þá sem hafa náð 20 ára aldri. David Guetta er án efa eitt stærsa nafnið í danstónlistarheiminum í dag og hefur verið með lög í í toppsætum vinsældarlista í Evrópu síðustu mánuði, m.a hér á Íslandi, eftir útgáfu nýjustu plötu sinnar "Pop Life". Reynt hefur verið að fá David Guetta til Íslands í um eitt og hálft ár án árangurs og er það því mikill fengur að loks nú hafi náðst samningar um komu hans til landsins. Þeir sem séð hafa David Guetta á tónleikum segja með ólíkindum hversu vel hann nær fólkinu með sér og sá andi sem skapist á uppákomum hans sé vanfundinn. David Guetta setur miklar kröfur varðandi ljós og hljóð og eru því sýningar hans einstakt augna- og eyrnayndi. Gus Gus koma fram í fyrsta sinn í langan tíma á Íslandi og verða tónleikar þeirra eitthvað það lang stærsta sem þau hafa farið út í hér á landi. Um er að ræða fullt sett og verða tekin mörg ný lög af væntanlegri plötu sem kemur út á haustmánuðum. Eins og Gus Gus aðdáendur vita leggur sveitin gríðarlega mikið upp úr besta mögulega hljóði og að sviðsmyndin sé til fyrirmyndar. Vegna þessa verður engu til sparað við að gera uppákomu Gus Gus að þeirra allra flottustu hingað til og hlakkar sveitin mikið til þess að leika í Hölinni. Miðasala hófst í dag á midi.is í verslunum Skífunnar og BT úti á landi.
Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Innipúkunum fjölgar enn Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Sjá meira