Nútímaleg lausn 15. nóvember 2008 06:00 Mikil tíðindi felast í niðurstöðu samráðshóps um gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Sú sátt sem náðist um niðurstöðuna bindur enda á áratugalangar deilur um gatnamótin. Margar útfærslur hafa verið kynntar fyrir borgarbúum og mislæg gatnamót á þessum stað hafa rokkað inn og út af aðalskipulagi, eftir því hvaða flokkar hafa verið við völd. Það er því mjög ánægjulegt að sameiginleg niðurstaða skuli nást um nýjar lausnir og vekur vonir um að af þessari framkvæmd geti orðið innan fárra ára. LausninÍ niðurstöðu samráðshópsins er megináherslan lögð á stokk á Miklubraut. Stokkurinn nær frá Rauðarárstíg/Snorrabraut í vestri og austur fyrir Kringlumýrarbraut. Þannig verða gatnamót Miklubrautar við Lönguhlíð og Kringlumýrarbraut mislæg, en þau síðarnefndu verða þó ekki það mikla mannvirki sem fyrri tillögur gerðu ráð fyrir. Í stað upphækkaðra gatnamóta með hringtorgi verður Kringlumýrarbraut í sömu hæð og hún er nú. Þeir ökumenn sem koma úr austri og eiga ekki erindi í Hlíðarnar munu hins vegar aka ofan í stokkinn áður en þeir koma að Kringlumýrarbraut og aka út úr stokknum milli Rauðarárstígs og Snorrabrautar. Talningar sýna að allt að 70% umferðarinnar muni fara þessa leið. Í niðurstöðu samráðshópsins er ekki gert ráð fyrir stokki á Kringlumýrarbraut sem lækkar kostnað við framkvæmdina um rúma 6 milljarða. Ef þörf verður talin á slíkum göngum í framtíðinni fara þau ágætlega saman við þá lausn sem nú er kynnt. Einnig er möguleiki á að lengja stokkinn austur fyrir Grensásveg, eins og íbúasamtök Háaleitis vilja. Það verkefni var þó utan verksviðs samráðshópsins. Lífsgæði borgarbúaMiklabrautin hefur verulega slæm áhrif á lífsgæði fjölda borgarbúa. Mikil svifryksmengun plagar íbúa nærliggjandi hverfa, öryggi barna og fullorðinna er ógnað, sífellt meiri hávaði frá götunni truflar fólk og dregur úr virði eigna þeirra. Í lausn samráðshópsins er tekið á öllum þessum vandamálum. Í stað beljandi umferðarfljóts verður hæg hverfisumferð á yfirborði, ein akrein í hvora átt. Svifryk og hávaði minnkar verulega og öryggi eykst. Sérstaklega er tekið fram að á yfirborði skuli hugað vel að þörfum gangandi og hjólandi vegfarenda og það er von mín að góðir reiðhjólastígar í báðar áttir verði loks að veruleika á þessu svæði. Auk þess skapast rými til að stækka græn svæði eða þétta byggð þegar umfang umferðarinnar minnkar. FramkvæmdirNiðurstaða samráðshópsins fer nú í formlegt ferli í borgarkerfinu þar sem ég á von á samstöðu um málið. Að því búnu tekur við hönnun og umhverfismat sem tekur 1-2 ár. Ástand efnahagsmála er með þeim hætti að erfitt er að svara því hvenær ríkið getur hafið framkvæmdir, en Reykjavíkurborg ætlar að tryggja að ekki standi á henni þegar hægt verður að ráðast í þessa mikilvægu framkvæmd. Ástæða er til að þakka öllum sem komu að samráðinu fyrir gott starf í þágu borgarbúa. Höfundur er formaður samráðshóps um framkvæmdir við Miklubraut og Kringlumýrarbraut. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Lítil skítseiði Hrafn Jónsson Skoðun Heilbrigðara Ísland Victor Guðmundsson Skoðun Sjálfstæðisflokkur ver ofurþéttingu við Birkimel Karólína Jónsdóttir Skoðun Einkabíllinn er mest niðurgreiddi ferðamátinn Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Það er ekki spurning hvort – heldur hvenær Arnar Helgi Lárusson Skoðun Sköpum samfélag í Garðabæ þar sem við erum öll velkomin Harpa Grétarsdóttir Skoðun Reykjavík er ekki spilaborg Einar Mikael Sverrisson Skoðun Mjóeyrarhöfn og ný tækifæri fyrir Fjarðabyggð Elís Ármannsson Skoðun Grunnur að bjartri framtíð í Kópavogi Sigrún Bjarnadóttir Skoðun Hér er pláss fyrir þig Sandra Hlín Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Reykjavík töluð niður svo hægt sé að selja eignir hennar Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ungmennafélagsandinn í útrýmingarhættu Hjalti Árnason skrifar Skoðun Um rekstur Reykjavíkurborgar 2025 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Er engin fréttamennska í þessu landi lengur? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Hugleiðing um barnamenningu í Mosfellsbæ í aðdraganda kosninga Guðrún Rútsdóttir skrifar Skoðun Hvað hefur gerst í leikskólamálum á kjörtímabilinu? Finnbjörn Hermannsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Félagsmiðstöðvar skipta máli Arndís Bára Pétursdóttir skrifar Skoðun Sköpum samfélag í Garðabæ þar sem við erum öll velkomin Harpa Grétarsdóttir skrifar Skoðun Lítil skítseiði Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Um hvað snýst þetta allt saman? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Styðjum betur við börn í Kópavogi Ester Halldórsdóttir skrifar Skoðun Af hverju Viðreisn 16. maí? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkur ver ofurþéttingu við Birkimel Karólína Jónsdóttir skrifar Skoðun Frelsi foreldra og farsæl byrjun – heimgreiðslur til 24 mánaða Birgitta Ragnarsdóttir,María Araceli,Berglind Ósk Guttormsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík er ekki spilaborg Einar Mikael Sverrisson skrifar Skoðun Við stýrum hraða í landi Blikastaða Hilmar Gunnarsson skrifar Skoðun Einkabíllinn er mest niðurgreiddi ferðamátinn Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Það er ekki spurning hvort – heldur hvenær Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Hér er pláss fyrir þig Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Mjóeyrarhöfn og ný tækifæri fyrir Fjarðabyggð Elís Ármannsson skrifar Skoðun Fjölbreytileiki er styrkur sveitarfélaga Irina S. Ogurtsova skrifar Skoðun Heilbrigðara Ísland Victor Guðmundsson skrifar Skoðun Hjólakynslóð framtíðar verður til Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Grunnur að bjartri framtíð í Kópavogi Sigrún Bjarnadóttir skrifar Skoðun Strætó, bílar, rafhjól og gangandi fólk Unnar Jónsson skrifar Skoðun Að kjósa af yfirvegun Morgan Bresko skrifar Skoðun Öll börn eiga rétt á öryggi Arna Magnea Danks skrifar Skoðun Umhverfið er okkar mál - Gaman að plokka í Garðabæ Guðfinna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Samfélag fyrir sum börn - framtíðarsýn sveitarfélaga fyrir fötluð börn Harpa Júlíusdóttir skrifar Skoðun Nauðsynlegar umbætur í menntamálum Inga Sæland skrifar Sjá meira
Skoðun Reykjavík töluð niður svo hægt sé að selja eignir hennar Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hvað hefur gerst í leikskólamálum á kjörtímabilinu? Finnbjörn Hermannsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar
Skoðun Frelsi foreldra og farsæl byrjun – heimgreiðslur til 24 mánaða Birgitta Ragnarsdóttir,María Araceli,Berglind Ósk Guttormsdóttir skrifar
Skoðun Samfélag fyrir sum börn - framtíðarsýn sveitarfélaga fyrir fötluð börn Harpa Júlíusdóttir skrifar