Opið bréf til formanns SVÞ 29. nóvember 2008 06:00 Friðrik Arngrímsson skrifar um stefnu Samtaka atvinnulífsins Kæra Hrund. Í bréfi þínu til félagsmanna Samtaka verslunar og þjónustu í dag varðandi það álitaefni hvort Samtök atvinnulífsins eigi að beita sér fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið og upptöku evru eru alvarlegri ásakanir og rangfærslur en við verður búið. Samtök atvinnurekenda í sjávarútvegi hafa eindregið hvatt til þess að Samtökum atvinnulífsins verið ekki beitt í baráttu með eða á móti inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Frá því að nýr formaður Samtaka atvinnulífsins hóf að tjá sig í nafni þeirra, að okkur finnst þvert á gildandi stefnu samtakanna, höfum við lagt áherslu á að um málið verði fjallað á réttum vettvangi samtakanna og að línur séu skýrar. Á stjórnarfundi í Samtökum atvinnulífsins þann 5. október sl. var málið til umfjöllunar. Ekki kom til atkvæðagreiðslu um það á fundinum og það vorum við, fulltrúar samtaka í sjávarútvegi, sem bentum á að samkvæmt samþykktum samtakanna þyrfti að bera málefnið undir aðildarfyrirtækin, þ.e. félagsmenn sjálfa, áður en til slíks kæmi. Niðurstaðan var sú að málinu var ekki vísað til framkvæmdastjórnar heldur var það áfram á borði stjórnar SA. Umboð fyrirsvarsmanna samtakanna var einfaldlega að lýsa málum eins og þau eru, þ.e. að skiptar skoðanir séu meðal aðildarsamtaka en að stjórnir samtaka með meirihluta atkvæðisréttar séu hlynntar aðildarumsókn. Á fundinum kom fram að LÍÚ gæti ekki verið í samtökum sem berðust gegn grundvallarhagsmunum sjávarútvegsins. Fullyrðingar þínar um „tilraun LÍÚ að reyna að hindra að málefnið sé tekið á dagskrá og reyna að hindra að aðrir félagsmenn fái að tjá sinn vilja og verja sína hagsmuni með bestum hætti" eru sérlega meiðandi. Við höfum eins og áður er lýst lagt áherslu á að málið sé afgreitt á réttum vettvangi komi til þess að afstöðu SA verði breytt og að áður en að slíkt gerist beri að leita eftir afstöðu aðildarfyrirtækja samtakanna. Við sáum okkur hins vegar tilneydd til að gera athugasemdir við afgreiðslu formanns SA og framkvæmdastjórnar á málinu. Það er óásættanlegt að formaður SA skyldi ekki verða við þeirri beiðni þriggja stjórnarmanna að afgreiða málið í stjórn þar sem öll aðildarsamtök Samtaka atvinnulífsins eiga fulltrúa eða áheyrnarfulltrúa enda brýtur það gegn samþykktum samtakanna. Það er jafnframt afar sérstakt að formaður og framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins skyldi hafna beiðni okkar um að aðildarfyrirtæki SA verði spurð um afstöðu þeirra til einhliða upptöku annars gjaldmiðils án inngöngu í Evrópusambandið. Þá finnst mér það ekki lýsa sérstaklega mikilli lýðræðisást að ekki megi spyrja aðildarfyrirtæki SA um það hvort þau vilji að SA beiti sér fyrir inngöngu í ESB þrátt fyrir að það þýði afsal á yfirráðum yfir fiskimiðunum við Ísland eins og við fórum fram á. Ég fer þess á leit að þú sendir þetta bréf til þeirra aðila sem fengu bréf þitt. Höfundur er formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna og stjórnarmaður í Samtökum atvinnulífsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Sjá meira
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun