Forstjórar gripnir við vændiskaup 9. mars 2008 13:06 Sheraton hótelið í Stokkhólmi þykir vænlegur veiðistaður.
Óli Tynes skrifar frá Svíþjóð Það er bannað með lögum að kaupa vændi í Svíþjóð. Lögin eru þannig að það eru kaupendurnir sem er refsað. Vændiskaupendur eru kallaðir þorskarnir hér í Svíþjóð. Og það þykir hin mesta skömm að vera afhjúpaður sem þorskur. Sænska lögreglan er nokkuð iðin við þorskveiðarnar og rennir gjarnan fyrir þá á lúxushótelum landsins. Undanfarnar vikur hefur hún gripið þar tvo þekkta forstjóra úr atvinnulífinu. Annar þeirra var forstjóri hjá opinberri stofnun. Sá þriðji var svo gripinn í íbúð vændiskonu. Það er dálítið kostulegt að vændiskonur meiga auglýsa vöru sína á netinu, við það eru ekki gerðar neinar athugasemdir. Og það gerir lögreglunni náttúrlega auðveldara að vinna sín störf. Löggurnar þurfa aðeins að vakta íbúðir sem konurnar búa í. Og banka svo uppá fimm mínútum eftir að karlmaður fer þar inn. Þá er enn einn þorskurinn kominn á land. Og það er dýrt spaug að vera landað. Forstjórinn sem var veiddur í íbúð vændiskonu var dæmdur í fimmtíu dagsektir upp á 500 sænskar krónur. Það gerir um kvart milljón íslenskar krónur.
Erlent Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira