Ein stærstu kaupin frá upphafi fjármálakrísu Óli Kristján Ármannsson skrifar 18. janúar 2008 06:00 Lykilmenn. Í nóvemberlok hittust í Garðabæ forstjórar og stjórnarformann hjá Marel til að undirbúa kynningarfund vegna kaupanna á Stork Food Systems. Þetta eru Árni Oddur Þórðarsonar, stjórnarformaður Marels og forstjóri Eyris, Theo Hoen, forstjóri SFS, Hörður Arnarson forstjóri Marels. Mynd/Völundur
Yfirtaka London Acquisition á Stork iðnsamstæðunni í Hollandi eru ein stærstu fyrirtækjakaup í Evrópu frá upphafi fjármálakrísunnar, upp á 1,7 milljarða evra. Landsbankinn og Eyrir Invest eiga fjórðung í félaginu á móti breska fjárfestingasjóðnum Candover. Yfirtakan var lýst skilyrðislaus í gær og með því líka uppfyllt eitt skilyrða í kaupum Marel Food Systems á matvælavinnsluvélahluta Stork samstæðunnar. Yfirtökutilboð London Acquisition á Stork N.V. er skuldbindandi og án skilyrða, samkvæmt tilkynningu félagsins í gær. Í byrjun vikunnar varð ljóst að 98 prósent hluthafa Stork hefðu samþykkt tilboðið. Yfirtakan er upp á 1,7 milljarða evra, eða tæpa 162 milljarða króna. Þar með hefur verið uppfyllt eitt af skilyrðunum fyrir kaupum Marel Food Systems hf. á Stork Food Systems. Enn er beðið umsagnar starfsmannaráðs Stork og heimildar samkeppnisyfirvalda. Samkvæmt tilkynningu Marels til Kauphallar í gær er búist við að niðurstaða liggi fyrir um miðjan mars næstkomandi. Nokkur söluhagnaður myndast í bókum Marel Food System við yfirtökuna á Stork, en við lok þriðja ársfjörðungs 2007 miðaðu virði eignarhlutar Marels í eignarhaldsfélaginu LME við lokagengi bréfa í Stork upp á 45,70 evrur á hlut, en sala hlutar Marel í LME miðaðist við gengið 48,40. Ætla má að Marel Food Systems fái tæpar 132 milljónir fyrir hlutinn, eða sem nemur um 12,5 milljörðum króna. „Jafnframt féll til vaxta- og viðskiptakostnaður vegna eignarhlutarins á fjórða ársfjórðungi," segir í tilkynningunni. Á móti kemur að Marel kaupir Stork Food Systems á 415 milljónir evra, eða nálægt 38 milljarða króna. Eignarhaldsfélagið LME, sem átti yfir 43 prósent í Stork, hefur verið leyst upp, en þar áttu hlut auk Marels, Eyrir Invest og Landsbankinn 40 prósent hvor. Eyrir og Landsbankinn eiga nú sem nemur fjórðungi í London Acquisition sem kaupir Stork. Heildarvirði eignarhlutar LME í Stork nemur um 659 milljónum evra, eða yfir 62,6 milljörðum króna og koma því tæpar 264 milljónir evra, rúmir 25 milljarðar króna, Eyris og Landsbankans hvors um sig. Í tilkynningu Eyris um viðskiptin til Kauphallar í gær kemur fram að fjárfesting félagsins í London Acquisition nemi 103,75 milljónum evra, eða rúmlega 9,8 milljörðum króna. Mun fjárfestingin að fullu fjármögnuð með eigin fé Eyris og langtímalánum til fimm til átta ára. Áætla má að fjárfesting Landsbankans í London Acquisition nemi 69 milljónum evra, eða rúmum 6,5 milljörðum króna. Eyrir hefur því losað um einhverja 15 milljarða króna í viðskiptunum og Landsbankinn um tæpa 19 milljarða. Golman Sachs fjármagnar yfirtökuna á Stork, en Landsbankinn kaup Marels á Stork Food Systems.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira