Actavis kaupir lyfjaverksmiðju á Ítalíu 18. janúar 2008 10:27 Róbert Wessman, forstjóri Actavis.
Actavis hefur samið við lyfjafyrirtækið Pfizer um kaup á lyfjaverksmiðju sem sérhæfð er í framleiðslu krabbameinslyfja. Í tilkynningu frá félaginu segir að verksmiðjan sé staðsett í bænum Nerviano, um 30 km frá Mílanó á Ítalíu, verksmiðjusvæðið er um 300,000 fermetrar og fastir starfsmenn um 340 talsins. Að auki hefur Actavis samið til nokkurra ára um framleiðslu á krabbameinslyfjum fyrir Pfizer. Verksmiðjan var byggð af ítalska lyfjafyrirtækinu Farmitalia árið 1965. Hún hefur hlotið samþykki bandarísku Matvæla- og lyfjastofnunarinnar (FDA), Evrópusambandsins, og japanskra lyfjayfirvalda. Í verksmiðjunni er framleiddur fjöldi lyfja, sem seld eru til um 70 landa. „Þessi kaup gera okkur kleift að halda áfram að auka framboðið á krabbameinslyfjum frá Actavis," segir Róbert Wessman, forstjóri Actavis. „Þetta er afar háþróuð verksmiðja, með sérþjálfuðu starfsfólki, sem hefur framleitt hágæðalyf árum saman. Við höfum sagt það fyrr að Actavis vex áfram og dafnar sem einkafyrirtæki, og kaupin á þessari verksmiðju eru til marks um það." Actavis hyggst í framtíðinni þróa ný lyf til framleiðslu í Nerviano, og flytja þangað framleiðslu á sumum eldri lyfjum. Mikið samstarf verður milli Nerviano og Búkarest, þar sem Actavis þróar og framleiðir krabbameinslyf. Gert er ráð fyrir að endanlega verði gengið frá kaupunum í lok mánaðarins, en þau eru með fyrirvara um samþykki ítalskra samkeppnisyfirvalda. Lyfjaverksmiðjur Actavis eru þar með orðnar 21, í 14 löndum; Ítalíu, Bandaríkjunum, Bretlandi, Möltu, Tyrklandi, Búlgaríu, Serbíu, Rússlandi, Rúmeníu, Kína, Indlandi, Indónesíu, Noregi og á Íslandi.
Mest lesið Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Himneskt ei meir Viðskipti innlent Kaupa CCP aftur frá Kóreu Viðskipti innlent Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Samstarf Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Sjá meira