Deildarstjóri Matís varði doktorsverkefni í iðnaðarverkfræði 18. janúar 2008 16:55 Sveinn Margeirsson
Sveinn Margeirsson, deildarstjóri hjá Matís, varði doktorsverkefni sitt í iðnaðarverkfræði við verkfræðideild Háskóla Íslands í dag. Verkefnið, sem nefnist Vinnsluspá þorskafla, fjallar um hvernig hægt er að hámarka afrakstur fiskveiða. Markmið verkefnisins var að safna gögnum um þorskveiðar og vinnslu fjögurra íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja, greina þau á tölfræðilegan hátt og setja upp bestunarlíkön til að auðvelda stjórnun á veiðum og vinnslu þorsks á Íslandsmiðum. Gögnum um flakanýtingu, los og hringorma í þorski var safnað frá 2002 til 2006. Allar þessar breytur hafa veruleg áhrif á hagnað af þorskveiðum og vinnslu. Niðurstöður verkefnisins gefa til kynna að afrakstur virðiskeðju þorsks geti verið aukinn með því að sækja þorskinn á ákveðin veiðisvæði og á ákveðnum tíma árs en niðurstöðurnar sýndu að flakanýting, los og hringormar í þorski eru m.a. háð veiðistaðsetningu og árstíma. Sveinn Margeirsson er fæddur árið 1978. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund 1997. Árið 2001 hlaut hann B.Sc-gráðu í matvælafræði við Háskóla Íslands. Frá árinu 2003 stundaði Sveinn nám við Háskóla Íslands og Danmarks Tekniske Universitet í iðnaðarverkfæði. Sveinn var eðlisfræðikennari við Menntaskólann við Sund á árunum 1997-1999. Frá 2003-2006 starfaði hann hjá Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins en frá árinu 2007 hefur hann verið deildarstjóri hjá Matís ohf. Eiginkona Sveins er Þórunn Rakel Gylfadóttir, sjúkraþjálfari og M.Sc í markaðsfræði. Börn þeirra eru Iðunn Fjalldís og Gunnar Jarl. Þá á Þórunn Rakel Kára Eldjárn frá fyrra sambandi.
Mest lesið Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Himneskt ei meir Viðskipti innlent Kaupa CCP aftur frá Kóreu Viðskipti innlent Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Samstarf Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Sjá meira