Viðsnúningur á miklum halla á utanríkisviðskiptunum 3. júní 2008 10:18
Eftir geysimikinn halla á utanríkisviðskiptum undanfarin ár er nú tekið að rofa heldur til í þeim efnum. Álútflutningur hefur stóraukist á síðustu mánuðum, en álver Alcoa á Reyðarfirði náði fullri afkastagetu um miðjan apríl. Ennfremur hefur álverð haldist hátt undanfarið og er útlit fyrir að svo verði áfram á komandi misserum. Í nýrri þjóðhagsspá greiningar Glitnis er gert ráð fyrir að viðskiptahalli minnki úr tæplega 16% af vergri landsframleiðslu á síðasta ári í 10% á næsta ári. Næstu árin mun svo viðskiptahalli minnka enn frekar þar sem hraðari vöxtur verður í útflutningi vöru og þjónustu en innflutningi, auk þess sem halli á þáttatekjum mun heldur minnka. Verður hallinn að mati greiningarinnar í námunda við 6% af vergri lands í upphafi nýs áratugar. Greining Glitnis segir í Morgunkorni sínu hvað viðskiptahallann varðar að svipaða sögu megi segja af verði sjávarafurða og álsins. Skerðing þorskkvóta setur þó nokkurt strik í reikninginn hvað varðar heildarverðmæti útfluttra sjávarafurða. Á móti vegur að skilyrði til vaxtar verða verri hjá fyrirtækjum almennt framan af spátímanum. Kemur það til bæði vegna þess að fjármagn er bæði torfengnara og dýrara en áður, og eins sakir þess að hagvöxtur á alþjóðavísu mun verða með minna móti á næstunni. Þó mun draga jafnt og þétt úr þessum neikvæðu áhrifaþáttum er á spátímann líður og ættu rekstrarskilyrði útflutningsgreina að vera orðin nokkuð ákjósanleg á seinni árum spátímans.
Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fá að kaupa Pei og Motus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Sjá meira