„Áhrifamesta konan í tískuheiminum“ ráðin forstjóri Whistles 29. janúar 2008 15:37 Jane Shepherdsson með Phillip Greene og Kate Moss.
Jane Shepherdsson, ein aðalsprautan bak við velgengni Top Shop verslunakeðjunnar undanfarin ár hefur verið ráðin forstjóri keppinautarins Whistles. Landflótti virðist brostinn á hjá Top Shop, sem er í eigu Phillips Green, en hönnuðir og stjórnendur sem hafa átt stóran þátt í velgengni hennar undanfarin misseri hættu á síðasta ári. Þeir koma nú saman hjá Whistles, sem er í eigu baugs, undir stjórn Shepherdsson, fyrrverandi vörumerkjastjóra Top Shop. Shepherdsson hefur margsinnis verið lýst sem einni áhrifamestu konunni í tískuheiminum. Hún fór frá Top Shop í fússi í lok árs 2006, vegna óánægju með að Greene hefði einhliða boðið Kate Moss hefði að hanna fatalínu fyrir búðina. Opinberlega hefur hún síðan unnið við ráðgjöf fyrir Oxfam and People Tree, en samkvæmt breskum fjölmiðlum mun hún samhliða hafa staðið í samningum við Baug um flutninginn yfir til Whistles. Úr varð að Baugur fellst á að taka Whistles út úr Mosaic Fashion samsteypunni, og Sheperdsson og hópurinn kringum hana kaupir tuttugu prósent í fyrirtækinu. Sá hlutur er nú metinn á um 20 milljónir punda, eða rúman tvo og hálfan milljarð króna. Greene átti erfitt með að dylja vonbrigði sín þegar fjölmiðlar leituðu viðbragða við ráðningu hennar hjá Whistles. „Ef þú hefur besta starfið í tískuheiminum og endar þarna (hjá Whistles) hvað segir það þér?" hreytti hann í blaðamann. Það sem það segir Greene að öllum líkindum, þó hann sé tregur til að viðurkenna að, er að Top Shop muni mæta aukinni samkeppni á næstunni. Whistles hefur þótt í töluverðri lægð, og er téðri Shepherdsson er einmitt að hluta til kennt um að miður fór hjá keðjunni. Á áttunda og níunda áratugnum var Whistles vinsælt vörumerki, einkum þekkt fyrir óvenjulega sniðin föt. Árið 2001 seldi stofnandi keðjunnar hana, og hún byrjaði að dala - sama ár og Top Shop, undir forystu Shepherdsson festi sig kyrfilega í sessi sem ódýr og smart búð fyrir bæði efnaminni námsmenn og betur stæðar framakonur.
Mest lesið Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Viðskipti erlent Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Viðskipti innlent Wolt sendlar lögðu niður störf Viðskipti innlent Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Viðskipti innlent Fleiri valkostir í Bónus með Salling Samstarf 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Samstarf Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Neytendur Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum Samstarf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Sjá meira