Bubbi vill fá borgað í evrum Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir skrifar 21. apríl 2008 17:33 „
Ég og umboðsmaður minn erum að leggja drög að því að mér verði borgað í evrum þar sem því verður komið við," segir Bubbi Morthens. „Ég hef ekki lengur trú á krónunni. Hún er ónýtur gjaldmiðill, og mun setja þúsundir manna á hausinn á næstu misserum á Íslandi. " segir Bubbi, sem vandar gjaldmiðlinum ekki kveðjurnar. „Krónan heldur þjóðinni í gíslingu." Hann bendir á að þúsundir manna séu með lán í erlendum gjaldmiðlum, framtíðin sé ekki björt hjá þeim. „Það verða fjöldagjaldþrot með þessu áframhaldi. Og það heyrist ekki múkk frá ríkisstjórninni, ekki orð um þessi mál." „Ríkisstjórnin ætti að vera löngu búin að taka af skarið og segja að Evrópusambandið væri inni í myndinni." segir Bubbi og bætir við að það sé rekinn hræðsluáróður gegn Evrópusambandinu. Það kæmi öllum landsmönnum til góða að ganga í það. „Þetta var kannski skiljanlegt á meðan við lifðum eingöngu á fiski, og fiskurinn var það eina sem skilaði okkur tekjum. Það er liðin tíð. Það er árið 2008 og heimurinn er ekki það sem hann var. Meira að segja jöklarnir eru að hverfa, en ríkisstjórnin heldur fast í krónuna. Hvaða bull er þetta?" Bubbi segir áberandi meirihluta þjóðarinnar fylgjandi Evrópusambandsaðild, og fólkið í landinu geti haft áhrif. „Fólk verður beita öllum sínum áhrifum. Þvinga yfirmenn þjóðarinnar til þess að sjá til þess að fólkið í landinu hafi það sem best og fái laun í gjaldmiðli sem gerir það að verkum að fólk geti lifað sómasamlega.
Mest lesið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Olivia Rodrigo á Íslandi Lífið Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Fleiri fréttir Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Sjá meira