Samstiga í tæknilausn Óli Kristján Ármannsson skrifar 4. júní 2008 04:00 Farið yfir ferlið Lars Gruntvig, sem varð einn af stærstu hluthöfum Marels við samrunann við Scanvægt, ræðir hér við Frans-Josef Rothkötter, framkvæmdastjóra og einn eigenda kjúklingaverksmiðjunnar í Emsland. Markaðurinn/ÓKÁ
Marel og Stork hafa í tæpan áratug átt í nánu samstarfi og er það meðal annars þess vegna sem búist við að samruni fyrirtækjanna gangi átakalítið fyrir sig, enda skarast starfsemi fyrirtækjanna lítið. Þetta er ólíkt erfiðum samruna Marels við Scanvægt í Danmörku þar sem fyrirtækin áttu í harðvítugri samkeppni. Óvíða kemur betur fram samstarf fyrirtækjanna en í einni fullkomnustu kjúklingaverksmiðju heims sem er í Neðra-Saxlandi í Þýskalandi. Í Emsland Frischgeflügel er vinnslulínan frá Stork Food Systems, en hugbúnaður, gæðaeftirlit og fleiri þættir frá Marel. Í heimsókn fjárfesta og annarra gesta til Emsland fór Frans-Josef Rothkötter, framkvæmdastjóri og einn eigenda, yfir ferlið sem er einstakt bæði hvað varðar afköst og öryggi. Verksmiðjan, auk fóðurframleiðslu og annarrar starfsemi, er í eigu fjölskyldufyrirtækisins Rothkötter Kraftfutterwerk GmbH. Reynt er eftir fremsta megni að haga slátrun kjúklinganna þannig að þeir verði ekki fyrir óþarfa óþægindum, enda skilar vanlíðan sláturdýra sér í verra kjöti. Kjúklingunum er slátrað með gasi og svo færðir upp á króka sem bera þá í gegnum alla verksmiðjuna. Hraðinn er slíkur að á sekúndu eru unnir 6,66 kjúklingar, eða 24.000 á klukkustund. Á um það bil fjórum tímum eftir slátrun fer kjúklingurinn í gegnum fiðurhreinsun, kælingu og eftirvinnslu þar sem hann er bútaður niður og er á endanum kominn í neytendapakkningar og tilbúinn til flutnings í verslun. Í Emsland er í raun um að ræða tvær verksmiðjur sem keyrðar eru hlið við hlið og skila frá sér 320 þúsund kjúklingum á dag, en fjórðungur seldra kjúklinga í Þýskalandi kemur frá þessari einu verksmiðju.
Mest lesið Dæmdur skattsvikari beri enga ábyrgð á fjármálum fyrirtækisins Viðskipti innlent Að takast á við sjokkerandi breytingar í vinnunni Atvinnulíf Kastrup opnar á ný eftir karp við heilbrigðiseftirlitið Viðskipti Sigríður Theódóra til Aton Viðskipti innlent Enn færri komast að í HR en vilja Viðskipti innlent Kjarasamningar undirritaðir fyrir nær allt launafólk Viðskipti innlent Stórfyrirtæki flýi borgina vegna skatta Viðskipti innlent Búinn að afnema regluverkið sem tafði fyrir opnun Kastrup Viðskipti innlent Skúli og félagar aftur sýknaðir af milljarðakröfum Viðskipti innlent Húsgagnahöllin sektuð fyrir ósanngjarnar auglýsingar Neytendur Fleiri fréttir Kjarasamningar undirritaðir fyrir nær allt launafólk Enn færri komast að í HR en vilja Sigríður Theódóra til Aton Dæmdur skattsvikari beri enga ábyrgð á fjármálum fyrirtækisins Stórfyrirtæki flýi borgina vegna skatta Skúli og félagar aftur sýknaðir af milljarðakröfum Magnús Þór leggur Samtökum iðnaðarins ráð Búinn að afnema regluverkið sem tafði fyrir opnun Kastrup Segir ljóst að SVEIT hafi eitthvað að fela Íris nýr sviðsstjóri hjá VSB verkfræðistofu SVEIT kærir dagsektir Samkeppniseftirlitsins Vodafone, Stöð 2, Stöð 2+ og Stöð 2 Sport sameinast undir merki Sýnar Starbucks frestar opnun fram í lok sumars SVEIT þarf að greiða milljón á dag þar til gögn eru afhent Embla Medical hlaut útflutningsverðlaun forsetans og Ragnar Kjartans heiðraður Aukinn samdráttur á flugi til Íslands með breyttu Play Skattur á atvinnuhúsnæði hækkað um helming á áratug Tekur við fyrirtækjaráðgjöf Arion banka Hlutabréf Play ruku upp við opnun markaða „Erum bara að hætta þeirri starfsemi sem hefur gengið illa“ Áttatíu milljóna gjaldþrot Heimabakarís á Húsavík Vilja taka yfir Play Boða komu HBO Max til landsins á ný Pála ráðin kynningarfulltrúi BHM Bjarki og Axel Valdemar nýir forstöðumenn hjá atNorth Umsóknir í HA aldrei verið fleiri Keyptu Brauðhúsið til að fara ekki á hausinn 118 ára sögu Hans Petersen að ljúka Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Miðeind festir kaup á Snöru Sjá meira