Framtíðin er í kjúklingi Óli Kristján Ármannsson skrifar 4. júní 2008 06:00 Við flæðilínuna Fjárfestar og aðrir gestir kynntu sér kjúklingaverksmiðju Emsland Frischgeflügel í Þýskalandi í byrjun síðustu viku. Markaðurinn/ÓKÁ
Hækkandi fóðurverð hefur gefið kjúklingarækt byr undir báða vængi, ef þannig má að orði komast. Helsti styrkur Stork Food Systems, sem nú hefur runnið saman við Marel Food Systems, er einmitt tæki til kjúklingavinnslu. Í nýrri skýrslu greiningardeildar Morgan Stanley er mælt með fjárfestingum í kjúklingaiðnaði enda spáð örum vexti í þeim geira næstu ár. Samkvæmt útreikningum greiningardeildarinnar var hlutfall almennrar neyslu á kjúklingakjöti í samanburði við annað í fyrra 34,7 prósent. Árið 2017 gerir bankinn hins vegar ráð fyrir því að hlutfallið verði komið í 57,2 prósent. Nokkrir þættir eru þarna ráðandi, svo sem áframhaldandi fólksfjölgun í heiminum, aukin kjötneysla með bættum efnahag í fátækari löndum sem og annars staðar, hækkandi fóðurverð vegna aukinnar korneftirspurnar með aukinni framleiðslu á lífrænu eldsneyti, auk annarra umhverfisþátta sem ýta undir hærra verð. Fóðurverð vegur þungt í framleiðslukostnaði kjötvara og því ekki að undra þótt því sé spáð að kjúklingur nái yfirhöndinni, enda víðast hvar ódýrari en annað kjöt. Þannig þarf sjö kíló af fóðri til að búa til eitt kíló af nautakjöti, fimm kíló á móti kílói af svínakjöti, en einungis 1,6 til tvö kíló af fóðri til að framleiða eitt kíló af kjúklingakjöti. Einungis eldisfiskur er með betri fóðurnýtingu, þar sem kíló kemur á móti kíló. Þar er framleiðslan hins vegar mun flóknari og hættara við áföllum en í kjúklingaræktinni. Eldislax tekur allt að þrjú ár að komast á markað á meðan framleiðsluferli kjúklings nemur ekki nema fimm til sjö vikum.
Mest lesið Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Viðskipti innlent Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Viðskipti innlent Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Viðskipti erlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Sjá meira