Baugur selur fyrirtæki fyrir 65 milljarða 7. apríl 2008 22:28 Jón Ásgeir Jóhannesson
Baugur Group hefur lokið endurskipulagningu á eignasafni sínu á þann veg að félagið mun nú einbeita séralfarið að fjárfestingum í smásölu. Í kjölfar breytinga á stjórnendateymi og sölu fasteignasafns félagsins á síðasta ári hefur Baugur gert samkomulag um sölu á fjárfestingum sínum í fjölmiðlum, tækni og fjármálum, þ.m.t. hlut félagins í FL Group, til tveggja nýrra, sjálfstæðra félaga. Umfang þessara viðskipta eru um 65 milljarða króna. ,,Við þessar breytingar mun Baugur einbeita sér alfarið að fjárfestingum í smásölufyrirtækjum þar sem við búum yfir fágætri reynslu. Þess utan styrkja breytingarnar okkur í frekari sókn á markaði, enda erum við sannfærð um að núverandi markaðsaðstæður eigi eftir að bjóða uppá spennandi tækifæri sem við viljum notfæra okkur. Á næstu misserum munum við ennfremur halda áfram uppbyggingu þess eignasafns sem við höfum verið að byggja á undanförnum árum og er vel yfir 200 milljarða króna virði en í því felast veruleg tækifæri til frekari verðmætasköpunar. Það mun nást með því að styrkja enn frekar þeirra undirstöður á heimamörkuðum auk þess að efla þau í uppbyggingu á vaxtamörkuðum eins og nýmarkaðslöndum og á internetinu,“ segir Gunnar S. Sigurðsson, forstjóri Baugs Group. Auk þess að takmarka fjárfestingar Baugs við smásölugeirann munu breytingarnar endurskilgreina landfræðilegan markað félagsins, þar sem u.þ.b. 85% fjárfestinga Baugs verða nú í Bretlandi, í Bandaríkjunum og í Skandinavíu. Fjárfestingafélagið Stoðir Invest, sem er í eigu helstu hluthafa Baugs, kaupir hluti Baugs í fjölmiðla- og fjarskiptafélögum og Styrkur Invest, sem er í eigu Kaldbaks ehf., fjárfestingarfélags Samherja og helstu hluthafa Baugs, kaupir hluti Baugs í fjárfestinga- og fjármálafyrirtækjum. Baugur Group verður ekki hluthafi í þessum félögum. Í kjölfar breytinganna munu Þórdís Sigurðardóttir og Eiríkur S. Jóhannsson hætta í framkvæmdastjórn Baugs Group. Þórdís var áður framkvæmdastjóri fjölmiðla- og tæknisviðs Baugs en verður nú forstjóri Stoða Invest. Eiríkur verður forstjóri Styrks Invest en hann var áður framkvæmdastjóri fjárfestingasviðs hjá Baugi. Samhliða þessu mun Andrew Lobb, forstöðumaður rekstrarsviðs Baugs Group, taka sæti í framkvæmdastjórn félagsins sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs. ,,Þessar breytingar eru síðasta skrefið í röð breytinga sem við hófum innleiðingu á í fyrra. Nýja skipulagið gerir okkur kleift að einbeita okkur af enn meiri kappi að smásölufyrirtækjum okkar. Núverandi markaðsaðstæður eru krefjandi og spennandi og í gegnum hið sterka eignasafn sem við höfum byggt upp á undanförnum árum er Baugur í einstakri stöðu til að vera í fararbroddi þeirrar þróunar sem verður á smásölu á heimsvísu á næstu árum," segir Jón Ásgeir Jóhannesson starfandi stjórnarformaður Baugs. Í júní 2007 urðu breytingar á framkvæmdastjórn Baugs Group og í desember seldi félagið fasteignasafn sitt til FL Group. Fyritæki og fjárfestingar sem seldar eru: 365 Teymi Humac 365 Media /Nyhedsavisen Hjálmur (DV, Birtingur, Skuggi) Saga Film & EFG Newsedge Ýmsar fjárfestingar í minni félögum FL Group
Mest lesið Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Sjá meira