Viðskipti innlent

Nordic Photos í útrás

Arnaldur Gauti Johnson er framkvæmdastjóri Nordic Photos.
Arnaldur Gauti Johnson er framkvæmdastjóri Nordic Photos.
Myndabankinn Nordic Photos hefur sett upp þjónustuver í Danmörku og endurbætt vefsíðu sína sem er nú aðgengileg á fimm tungumálum, norsku, sænsku, dönsku, íslensku og ensku. Þá hefur sölukerfið hefur verið uppfært og er nú hægt að kaupa myndir allan sólarhringinn með greiðslukortum.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að NordicPhotos, sem var stofnað í lok ársins 2000, sé orðinn einn stærsti myndabanki á Norðurlöndum og velti um 300 milljónum króna á ári. 115 þúsund ljósmyndir frá fleiri en 500 ljósmyndurum eru í safninu, en auk þess sér NordicPhotos um sölu og dreifingu á erlendum myndasöfnum eins og Getty Images og AFP. Tuttugu manns starfa á skrifstofum fyrirtækisins í Reykjavík, Stokkhólmi og Osló.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×