Nærri fimmtugshækkun í Kauphöllinni frá páskum 7. apríl 2008 17:32 Þórður Friðjónsson er forstjóri Kauphallarinnar. MYND/GVA
Töluverður viðsnúningur hefur orðið á þróun hlutabréfaverðs frá páskum en samkvæmt hálffimmfréttum Kaupþings hefur úrvalsvísitalan hækkað um rúm 18 prósent á þeim tíma. Náði vísitalan sínu lægsta gildi í um tvö og hálft ár í kringum páska. Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,7 prósent í dag og endaði í 5.393 stigum.Greiningardeild Kaupþings bendir á að viðsnúningur á hlutabréfamarkaði hafi haldist í hendur við mikla styrkingu krónunnar sem hefur styrkst um 7,7 prósent frá páskum. „Hlutabréf og krónan hafa viðleitni til að fylgjast nokkuð að enda ræðst verðlagningin í báðum tilvikum m.a. af horfum fyrir íslenska fjármálamarkaðinn og hagkerfið í heild. Þá er skýringa einnig að leita í hækkun á erlendum hlutabréfamörkuðum sem hafa smitast yfir á þann íslenska. Félög sem eru að hluta til í eigu íslenskra fjárfesta og fjármálafyrirtækja hafa rétt úr kútnum og endurspeglar það að einhverju leyti þróunina heima fyrir,“ segir greiningardeildin.Þá segja Kaupþingsmenn að margir muni horfa til stýrivaxtaákvörðunar Seðlabankans í vikunni sem gæti haft töluverð áhrif á gang fjármálamarkaðarins á næstunni. „Styrking krónunnar upp á síðkastið endurspeglar að einhverju leyti væntingar fjárfesta um að Seðlabankinn grípi til aðgerða til að bæta seljanleika á gjaldeyrismarkaði. Greiningardeild hefur áður bent á að vandamál krónunnar sé ekki að stýrivextir séu of lágir heldur skortur á seljanleika á gjaldeyrismarkaði. Því gerir deildin ráð fyrir að Seðlabankinn leggi áherslu á aðgerðir til að bregðast við þeim vanda en haldi stýrivöxtum óbreyttum í 15%."
Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira