Viðskipti innlent

Metvelta á gjaldeyrismarkaði í mars

Metvelta var á gjaldeyrismarkaði í marsmánuði en samkvæmt tölum sem Seðlabankinn birti fyrir helgi nam velta á millibankamarkaði 1.212 milljörðum kr. í mars og hefur aldrei verið meiri í einum mánuði.

Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Glitnis. Þar segir að veltan meira en tvöfaldaðist frá fyrri mánuði þegar hún nam 550 milljörðum kr.

Velta með gjaldeyri á millibankamarkaði á 1. fjórðungi ársins nam alls 2.000 milljörðum kr. sem er svipuð velta og var á fyrri helmingi síðasta árs. Veltan á 1. ársfjórðungi síðasta árs var sú sama og var nú í marsmánuði einum og sér. Til samanburðar nam velta með gjaldeyri í mars á síðasta ári 413 milljörðum kr.

Velta með gjaldeyri hefur verið að aukast hér á landi síðustu misserin. Heildarvelta með gjaldeyri á millibankamarkaði á síðasta ári var samtals 4.967 milljarðar kr. og hefur ársveltan ríflega fimmfaldast frá síðustu aldamótum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×