Glitnir dregur úr fasteignalánum í Lúx og losar um allt að 100 milljörðum 7. apríl 2008 13:56
Glitnir mun breyta áherslum í starfsemi sinni í Lúxemborg með því að draga sig út úr fasteignalánastarfsemi sem þar hefur verið starfrækt. Framvegis mun Glitnir í Lúxemborg leggja áherslu á eignastýringu fyrir viðskiptavini bankans á Norðurlöndum og á alþjóðavísu. Með þessari breytingu losar Glitnir um verulegan hluta af fasteignalánasafni sínu í Lúxemborg og styrkir með því lausafjárstöðu bankans eins og segir í tilkynningu frá bankanum. Þar segir einnig að endurskipulagning á starfsemi Glitnis í Evrópu sé hluti að þeirri stefnu bankans að einbeita sér að kjarnastarfsemi hans á árinu 2008. Breytingarnar í Lúxemborg koma í kjölfar ákvörðunar um að loka skrifstofu bankans í Kaupmannahöfn í febrúar síðastliðnum. Með því að draga úr umsvifum í fasteignalánastarfsemi í Lúxemborg gerir Glitnir ráð fyrir að losa fjármuni sem samsvara allt að 100 milljörðum króna í lausafé. „Þessar breytingar eru mikilvægur liður í að skerpa áherslur bankans í Evrópu og ná fram hagræðingu og aukinni kostnaðarsamlegð í starfsemi bankans. Þetta sýnir ennfremur sveigjanleika bankans í stýringu lánasafns okkar við núverandi markaðsaðstæður", segir Helgi Anton Eiríksson, framkvæmdastjóri Glitnis í Evrópu í tilkynningunni. Í tengslum við endurskipulagninguna hefur Glitnir ráðið Ara Daníelsson, fyrrum framkvæmdastjóra Glitnis Fjármögnunar, sem nýjan framkvæmdastjóra yfir starfsemi bankans í Lúxemborg.
Mest lesið Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Sjá meira