Einhliða upptaka evru tæki 4 vikur og kostaði 80 milljarða kr. 5. desember 2008 10:54
Kostnaður við einhliða upptöku evru yrði 80 milljarðar króna, sem færi til að skipta út grunninnistæðum. Einhliða upptaka evru tekur að hámarki fjórar vikur. Umsóknarferli fyrir fullgilda aðild að ESB tæki aldrei skemmri tíma en fjögur ár að viðbættum þriggja ára aðlögunartíma þar sem Maasticht-skilyrðin þurfa að nást. Þetta er mat Heiðars Más Guðjónssonar, framkvæmdastjóra Novator. Fjallað er um málið á vefsíðu LÍÚ. Þar er greint frá helstu sjónarmiðum Hreiðar. Þau helstu eru að innganga í ESB, að minnsta kosti 4 ár, og svo er 3 ára aðlögunartími þar sem Maastricth skilyrðin þurfa að nást, þannig að 8 ár, er raunhæft að ætla fyrir fullgilda EMU aðild ef allt gengur eftir, kosningar, aðildarviðræður, flýtimeðferð sem Oli Renn yfirmaður stækkunarmála ESB hefur nefnt og uppfylling Maastrict skilyrða. Ef reynt er að setja krónuna aftur á flot og tekin til þess erlend lán er ljóst að vaxtastig verður mun hærra en ef um einhliða upptöku er að ræða. Hærri verðbólga, hærri vextir og aukin óvissa myndi hafa í för með sér mikið álag á hagkerfið með auknu atvinnuleysi, lægri hagvexti og miklum samfélagslegum kostnaði. Einhliða upptaka er 80 milljarðar fyrir að skipta út grunninnistæðum. Nettó gjaldeyrisforði Seðlabanka Íslands 409 milljarðar, síðast þegar hann var uppgefinn, eða 5 föld sú fjárhæð. Við einhliða upptöku væri því hægt að nota um 320 milljarða sem nýtt hlutafé í nýju bankana, greitt inn í evrum. Innganga í ESB útheimtir að lán IMF og tengdra aðila séu tekin, um 6,5 milljarðar dollara, eða 850 milljarðar króna, auk nettó forða Seðlabankans, eða í heildina um 1200 milljarðar. Hér er ótalinn sá kostnaður sem hlýst af óbreyttri peningamálastefnu, hærri verðbólgu, hærri vöxtum, meiri óvissu, auknu atvinnuleysi og lægri hagvexti sem nefnt var hér að ofan. Með því að halda áfram á sömu braut og leiddi okkur í ógöngur, mikil erlend skuldsetning og gjaldþrota peningastefna, er verið að taka mikla pólitíska áhættu með því að framlengja óbreytt ástand peningamála. Með því að afsala sér peningapólitík með öllu til faglegs seðlabanka er þeirri áhættu eytt. Pólitísk áhætta alþjóðlega er engin ef tekinn er upp Dollar en Bandaríkin hafa ekkert amast við slíkri upptöku. Pólitísk áhætta við upptöku Evru er önnur og meiri, en miðað við orð þeirra sem til þekkja takmörkuð. Hvort tveggja fullkomlega löglegt samkvæmt öllum milliríkjasamningum Íslands.
Mest lesið Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira