Umfangið meira en Kárahnjúkavirkjun Óli Kristján Ármannsson skrifar 23. apríl 2008 04:45 F-35 orrustuþota frá Lockheed Martin
Stork Aerospace hefur landað samningi við Lockheed Martin sem metinn er á um tvo milljarða Bandaríkjadala, eða yfir 150 milljarða króna. „Til að setja hlutina í samhengi má benda á að þetta er heldur meira en kostaði að byggja Kárahnjúkavirkjun,“ útskýrir Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Eyris Invest, en samkvæmt nýlegri skýrslu iðnaðarráðherra nam sá kostnaður rúmum 133 milljörðum króna. Eyrir Invest á fimmtán prósenta hlut í Stork-iðnsamstæðunni hollensku, Landsbankinn tíu prósent og breski fjárfestingarsjóðurinn Candover 75 prósent. Samstarfssamningurinn, sem undirritaður var á föstudag, gengur út á að Fokker Elmo, dótturfyrirtæki Stork Aerospace, framleiðir stuðningsvíravirki í F-35 JSF orrustuþotuna sem Lockheed Martin þróar. Árni Oddur segir að af undirverktökum sem komi að íhlutasmíði í flugvélaiðnaði hafi Stork Aerospace nokkra sérstöðu, enda sá eini sem hafi burði til að smíða heilar flugvélar, og byggi þar á grunni Fokker-flugvélaverksmiðjanna. Samningur Stork Aerospace og Lockheed Martin er sá stærsti sem hollenskt iðnfyrirtæki hefur gert um samstarf við „Joint Strike Fighter“-áætlunina. Til marks um það var efnahagsmálaráðherra Hollendinga, Maria van der Hoeven, viðstödd undirritun samstarfssamningsins, auk Beatrix Hollandsdrottningar og fleiri fyrirmenna. Kaup kynnt Árni Oddur Þórðarson er forstjóri Eyris Invest, sem á fimmtán prósenta hlut í Stork í Hollandi. Eyrir er jafnframt stærsti hluthafi Marels Food Systems sem var að kaupa matvælavinnsluvélahluta Stork, en Árni Oddur er líka stjórnarformaður Marels.Markaðurinn/GVAÍ byrjun þessarar viku var tilkynnt að öll skilyrði vegna yfirtöku Marels Food Systems á Stork Food Systems, sem áður var matvælavinnsluvélahluti Stork-samstæðunnar, væru að fullu uppfyllt með því að evrópsk samkeppnisyfirvöld gerðu ekki athugasemd við kaupin. Þegar gengið hefur verið frá lausum endum vegna kaupanna tekur Árni Oddur sæti í stjórn Stork í Hollandi, en það gat hann ekki gert fyrr vegna þess að hann er jafnframt stjórnarformaður Marels Food Systems. „Afkoma Marels á fyrsta ársfjórðungi verður birt 6. maí næstkomandi, en daginn eftir höldum við kynningarfund þar sem farið verður ítarlega yfir kaupin á Stork Food Systems og starfsemin kynnt betur ásamt framtíðaráætlunum,“ segir Árni Oddur, en með á þeim fundi verða einnig Hörður Arnarson, forstjóri Marels Food Systems, og Theo Hoen, forstjóri Stork Food Systems.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira