Stór gjaldþrot fyrirferðarmikil Óli Kristján Ármannsson skrifar 23. apríl 2008 05:30 Blað númer eitt Lögbirtingablaðið kom fyrst út fyrir rétt rúmum hundrað árum, 2. janúar 1908.
Níu gjaldþrot yfir fimmtíu milljónum króna sem auglýst hafa verið í Lögbirtingarblaðinu í þessum mánuði nema alls tæpum 1,2 milljörðum króna. Af þessari upphæð hefur rétt rúmur fimmtungur fengist upp í kröfur og kröfuhafar þar af leiðandi tapað rúmum 902 milljónum króna. Þó svo að nokkuð mörg stærri gjaldþrotamál hafi raðast inn í Lögbirtingablaðið í þessum mánuði eru þau ekki öll frá sama tíma. Þannig virðist tiltölulega nýlega hafa verið lokið að fullu skiptum í fjórum málum sem Brynjar Níelsson lögmaður sá um, en þau nema samtals tæpum 374 milljónum króna og eru frá árunum 1998 til 2003. Umfangsmest í þeim hópi er 150 milljóna króna gjaldþrot Borgarkaupa, en í þessum málum fékkst ekkert upp í kröfur. Eftir standa stærri gjaldþrot fyrirtækja upp á tæpar 774 milljónir króna frá miðju ári 2006 til ársloka 2007. Þar fékkst langmest upp í kröfur í stærsta gjaldþrotinu, en veð voru til fyrir veðkröfum upp á tæpar 226 milljónir í þrotabúi TX dreifingar hf. frá því 2006. Þar námu heildarkröfur tæpum 397 milljónum króna. Næststærst nýrri málanna er 137 milljóna króna gjaldþrot Hítarness frá því á síðasta ári. Næst kemur gjaldþrot Sliturs ehf, sem áður hét Merking skiltagerð, upp á rúmar 112 milljónir, þá Austurpóls frá því í fyrra upp á rúmar níutíu milljónir, og svo Stúdío Bílar þar sem kröfur námu rúmum 35 milljónum króna, en það félag var tekið til gjaldþrotaskipta síðasta haust.
Mest lesið Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Viðskipti erlent Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Viðskipti innlent Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Viðskipti innlent Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Fleiri fréttir Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Sjá meira