Viðskipti innlent

Dræm sala ríkisbréfa hjá Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands MYND/Róbert

Í gær fór fram útboð á ríkisbréfum hjá Seðlabanka Íslands þar sem óskað var eftir tilboðum fyrir allt að sextán milljarða króna í tvo flokka. Útgáfan fékk hins vegar takmörkuð viðbrögð.

Samkvæmt Hálffimm fréttum Kaupþings virðist sem Seðlabankinn hafi ofmetið eftirspurnina eftir stuttum ríkisbréfum í fyrstu.

Það sem helst vakti fyrir Seðlabankanum með viðbótarútgáfunni var að auka aðgengi erlendra fjárfesta að háum íslenskum vöxtum og stuðla þannig að styrkingu íslensku krónunnar. Það mætti því ýja að því að miðað við útkomu útboðsins væru ríkisbréfin ekki lengur aðlaðandi í augum erlendra fjárfesta.

Í fréttum Kaupþings er þó skýrt tekið fram að áhuginn á íslenskum vöxtum er þó harla að dragast saman heldur er líklegra að fjárfestar séu í auknum mæli að snúa sér aftur að gjaldeyrisskiptamarkaðinum.

„Eftir miklar skuldabréfaútgáfur Seðlabankans að undanförnu hefur krónumagn í umferð dregist saman og í kjölfarið hefur vaxtamunur á gjaldeyrisskiptamarkaði aukist að nýju. Það má því líta svo á að aðgerðir Seðlabankans hafi virkað að því leyti að nú gefst fjárfestum tækifæri á að taka stöðu í krónunni á gjaldeyrisskiptamarkaði á nýjan leik. Gallinn er hins vegar sá að enn erfiðara en áður er að fá fjármagn í krónum þar eð krónuskortur hefur aukist."










Fleiri fréttir

Sjá meira


×