Skelfileg mistök í hruninu á Íslandi 17. október 2008 06:00 Ákvörðun bandarískra stjórnvalda að láta Lehman-banka gossa verður harðlega gagnrýnd af hagsögufræðingum framtíðarinnar. Sú ákvörðun hratt af stað hinni snörpu fjármálakreppu sem við erum nú í. Þegar fjárfestingarbankinn Bear Stearns var gerður upp sáu bandarísk stjórnvöld til þess að hagsmunir allra mótaðila bankans í flóknum viðskiptum með ýmiss konar afleiður og skuldvafninga væru tryggðir. Stjórnvöld ábyrgðust áhættusömustu verðbréfagjörninga Bear Stearns um leið og bankinn var seldur til JP Morgan Chase. Eftir hrun Lehman, sem var látinn verða gjaldþrota, án þess að hagsmunir viðskiptamanna hans væru tryggðir, hefur gagnkvæmt traust hins vegar horfið. Peningamarkaðir og millibankalán frusu gjörsamlega. Skuldtryggingarálög fjármálastofnana ruku upp úr öllu valdi, sem var til vitnis um bæði nagandi ótta og bullandi spákaupmennsku. Meðal þeirra fyrstu til að falla var Glitnir á Íslandi. Íslensku bankarnir voru fastir í einum af mörgum vítahringjum kreppunnar: þeir þóttu of áhættusamir því Seðlabankinn var ekki álitinn trúverðugur bakhjarl ef í nauðir ræki, en ríkisstjórnin og Seðlabankinn þóttu aftur á móti ekki trúverðug þar sem þau gætu þurft að taka yfir bankana. Markaðurinn skall fyrst á Glitni. Líkt og hinir íslensku bankarnir, Landsbankinn og Kaupþing, stóð Glitnir í skilum. Allir skiluðu þeir góðu uppgjöri á fyrri árshelmingi, eiginfjárhlutfall þeirra var traust og þeir voru ekki í meiri þörf fyrir markaðsfjármögnun en aðrir bankar af svipaðri stærð. Enginn þeirra hafði fjárfest í verðlausum undirlánsbréfum. Þessum bönkum hafði verið vel stýrt frá því í „smákrísunni", á fyrri hluta ársins 2006. Allt kom þó fyrir ekki. Þegar erlendar lánalínur lokuðu varð Glitnir að sækja um skammtímalán hjá Seðlabankanum, en var synjað. Í stað þess að veita Glitni greiðslustöðvun, þjóðnýtti Seðlabankinn hann með tilvísan í lög. Formaður bankaráðs Seðlabankans, Davíð Oddsson, var forsætis- og utanríkisráðherra í þrettán ár áður en hann varð seðlabankastjóri árið 2005. Ákvörðun hans endurspeglar pólitík, tæknilegt vanhæfi og fálæti gagnvart mörkuðum. Athugasemdir sem hann lét falla í kjölfar þjóðnýtingarinnar grófu enn frekar undan stöðugleika. Þetta varð til þess að lánshæfismat ríkisins lækkaði og krónan féll enn frekar. Skammtímafjármögnun Glitnis og Landsbankans gufaði upp, Evrópski seðlabankinn krafðist nýrra trygginga og ákvæði í lánasamningum tóku gildi út af lækkuðu lánshæfismati. Þar sem bankarnir gátu ekki staðið við skuldbindingar sína veittu stjórnvöld þeim greiðslustöðvun. Kaupþing virtist enn eiga möguleika. En á þriðjudaginn í síðustu viku lét Davíð Oddsson orð falla sem voru túlkuð á þann veg að Ísland myndi ekki standa við skuldbindingar sínar gagnvart sparifjáreigendum í Bretlandi. Þetta var pólitík til heimabrúks. Það sama má segja um viðbrögð breskra stjórnvalda, sem tóku þá illa ígrunduðu ákvörðun að sölsa undir sig eignir bæði Landsbankans og Kaupþings í Bretlandi með vísan í hryðjuverkalög. Herskáar yfirlýsingar Gordons Brown verða ekki taldar til hans skynsamlegustu aðgerða í fjármálakreppunni. Gjaldþrot Kaupþings var fórnarkostnaður. Yfirtaka breskra stjórnvalda á dótturfyrirtækjunum Singer og Friedlander keyrðu bankann um koll, eftir að ákvæði í lánasamningum tóku gildi. Bretland og Ísland virðast nú hafa komist að samkomulagi um að koma til móts við sparifjáreigendur, en alltof seint fyrir Kaupþing. Það væri hins vegar flónska af breskum stjórnvöldum að reyna að skaða eignir Kaupþings enn frekar. Um leið náði gengi krónunnar fáránlegum lægðum í viðskiptum utan landsteinanna, en innanlands stöðvuðust viðskipti með krónuna. Seðlabankinn gerði þá tvenn ótrúleg mistök til viðbótar. Seðlabankinn hafði farið óhönduglega með stýrivaxtastefnu sína og gjaldeyrismarkaði síðan í ársbyrjun 2008. Í byrjun síðustu viku tilkynnti hann fastbundið gengi, sem var vel yfir markaðsgengi. Án skilvirkra stjórntækja reyndist hins vegar ekki unnt að festa gengið og frá því var horfið daginn eftir. Þá gaf Seðlabankinn út ótímabæra yfirlýsingu um að lán upp á fjóra milljarða evra frá Rússum væri í höfn, en í ljós kom að samningaviðræður myndu ekki hefjast fyrr en í þessari viku. Aðgerðir sem áttu að endurreisa tiltrú höfðu þveröfug áhrif. Íslensku bankarnir voru afar áhrifamiklir og stórir í samanburði við íslenskan efnahag. Sömu sögu er að segja með banka í Bretlandi og Sviss. Enginn þeirra hefur reynst ónæmur fyrir eyðileggjandi áhrifum kreppunnar. Og Ísland gæti reynst örlagarík smitleið til landa sem eru viðkvæm fyrir viðsnúningi á fjármagnsflæði. Við getum lært fleiri lexíur af þessu. Stjórnmálamenn ættu ekki að verða seðlabankastjórar. Davíð Oddsson er hluti af vandanum en ekki einni einustu lausn og ætti að segja af sér umsvifalaust. Að hleypa af stað „evruvæðingu" að hluta til var uppskrift að óstöðugleika. Og Ísland reyndist ófært, eða óviljugt, að semja við önnur ríki um aðstoð strax í upphafi og vildi heldur ekki leita til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Ísland gæti nú samið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um lán gegn skilmálum. En ef íslenska krónan verður áfram á fljótandi gengi gæti það haft hörmulegar afleiðingar, þrátt fyrir (eða kannski vegna) miklu hærri stýrivexti. Yfirvöld gætu haldið genginu stöðugu með gjaldeyrisstýringu. Eða þau gætu tilkynnt aðildarviðræður við Evrópusambandið, með tilheyrandi inngöngu í myntbandalagið. Geri þau það ættu yfirvöld ESB-ríkjanna að samþykkja ásættanlega gengistengingu gjaldmiðlanna. Hrunið er afleiðing þess að menn gerðu sér ekki grein fyrir alvarleika kreppunnar og skelfilegra mistaka í stefnu stjórnvalda. En Ísland býr yfir framúrskarandi stofnunum og mannauði, sem og þróaðri fjármálaþjónustu. Íslenska þjóðin horfir fram á tímabundna skerðingu á annars góðum lífskjörum. Bankarnir verða endurreistir sem miklu minni stofnanir, en með hæfa stjórnendur eftir sem áður. Ísland mun að lokum blómstra að nýju. Höfundur er prófessor í hagfræði við London Business School. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Skoðun Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Sjá meira
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun