Viðskipti innlent

Hagnaður MP fjárfestingabanka eykst

Styrmir Bragason, forstjóri MP fjárfestingabanka.
Styrmir Bragason, forstjóri MP fjárfestingabanka.

Hagnaður MP fjárfestingabanka á fyrstu sex mánuðum ársins 2008 nam 1.525 milljónum króna. Þetta er 36,4% aukning samanborið við fyrstu sex mánuði ársins 2007. Hagnaður bankans fyrir skatta á fyrri helmingi ársins nam 1.540 milljónum króna, sem er 16,5% aukning frá sama tíma í fyrra.

Hreinar vaxtatekjur eru 762 milljónir króna á fyrstu sex mánuðunum samanborið við 159 milljónir fyrstu sex mánuði árið 2007. Vaxtatekjur jukust um 45,6% á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við sama tíma í fyrra og námu alls 3.190 milljónum króna.

Heildareignir bankans jukust um 29,8% frá áramótum. Þær voru 68.220 milljónir króna í lok júní 2008, samanborið við 52.549 milljónir króna þann 31. desember 2007.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×