Viðskipti innlent

Landsvirkjun hagnaðist um sjö milljarða á fyrri árshelmingi 2008

Friðrik Sophusson er forstjóri Landsvirkjunar.
Friðrik Sophusson er forstjóri Landsvirkjunar.
Hagnaður Landsvirkjunar fyrstu sex mánuði ársins 2008 nam tæplega 83,5 milljónum bandaríkjadala, eða um 6,8 milljörðum íslenskra króna, samkvæmt rekstrarreikningi. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og skatta (EBIT) nam 138 milljónum Bandaríkjadala, eða 11,4 milljörðum króna.

Árshlutareikningur Landsvirkjunar er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskila­stöðlum og er hann í Bandaríkjadölum sem er starfrækslugjaldmiðill Landsvirkjunar frá og með ársbyrjun 2008.

Handbært fé frá rekstri nam rúmlega 76 milljónum Bandaríkjadala og eigið fé í lok tímabilsins nam tæplega 1,8 milljörðum Bandaríkjadala.

Handbært fé nam 137 milljónum bandaríkjadala í lok júní. Í tilkynningu frá Landsvirkjun segir að fjármögnun það sem af er árinu hafi gengið vel þrátt fyrir erfiðar aðstæður á lánamörkuðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×