Viðskipti innlent

Vextir Íbúðalánasjóðs lækka

Íbúðalánasjóður. Mynd/ GVA.
Íbúðalánasjóður. Mynd/ GVA.

Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að breyta útlánavöxtum. Vextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða 5,20% en 5,70% á íbúðalánum án uppgreiðsluákvæðis. Breytingin nemur 0,05-0,3%. Hin nýja vaxtaákvörðun tekur gildi í dag.

Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggir á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 18. apríl síðastliðinn, ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 4,73%, segir í frétt á vef Íbúðarlánasjóðs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×