Viðskipti innlent

Segir Tryggva styrkja stöðu ráðuneytisins

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Geir Hilmar Haarde forsætisráðherra.
Geir Hilmar Haarde forsætisráðherra.

„Það hefur verið mikið álag vegna stöðunnar í efnahags- og fjármálum, sem helgast meðal annars af ófyrirséðum atburðum á alþjóðamörkuðum og þeim áhrifum sem þeir hafa haft á íslenskt efnahagslíf," segir Geir H. Haarde, forsætisráðherra, um ástæður þess að Tryggvi Þór Herbertsson hefur verið ráðinn til starfa í ráðuneytinu.

„Ég vil bara með þessu styrkja stöðuna hérna í ráðuneytinu hvað varðar þessi mál. Og ég held að það séu fáir menn betur til þess fallnir heldur en Tryggvi Þór sem hefur ótrúlega góðan bakgrunn í þetta," segir Geir í samtali við Vísi. Hann bendir á reynslu Tryggva af störfum hans sem fyrrverandi forstjóri Hagfræðistofnunar og hagfræðiprófessors.

„Hann hefur mjög góð sambönd hérna innanlands og jafnframt erlendis á sínu fagsviði. Þannig að ég tel að þetta sé mikill happafengur fyrir ráðuneytið," segir Geir. Hann segir að ráðuneytið hafi áður fengið að njóta starfskrafta Tryggva Þórs og góð reynsla hafi verið af því.














Tengdar fréttir

Forstjóri Askar Capital ráðinn til forsætisráðuneytisins

Tryggvi Þór Herbertsson, hagfræðingur, hefur verið ráðinn tímabundið til forsætisráðuneytisins til að sinna ráðgjöf í efnahagsmálum, einkum á sviði peninga- og fjármálamarkaðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Ráðningin á sér skamman aðdraganda

„Ég ætla nú að áskilja mér rétt til að fá nokkra daga í starfið áður en ég fer að ákveða tillögurnar," segir Tryggvi Þór Herbertsson, nýráðinn ráðgjafi Geirs Haarde í efnahagsmálum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×