Hyggja á samtarf við helstu skóframleiðendur í heimi Björn Gíslason skrifar 17. apríl 2008 13:30 Óskar Jónsson ræðir hér við Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra sem er á ferð um Kína. Hann skoðaði verksmiðjuna í gær.
Íslenskir fjárfestar hafa komið á fót verksmiðju sem framleiðir íhluti fyrir skóverksmiðjur í Kína og hyggja á samstarf við helstu skóframleiðendur í heiminum. Forstjóri fyrirtækisins segir gríðarlega möguleika á kínverskum markaði og býst við að þurfa fjölga starfsfólki og stækka verksmiðjuna á næstu mánuðum. Íslenska fyrirtækið Green Diamond International hefur nýverið haslað sér völl í Kína. Að sögn Óskars Jónssonar, forstjóra fyrirtækisins, er verksmiðja félagsins sú fyrsta í landinu sem er að fullu í eigu Íslendinga. Verksmiðjan var opnuð í fyrra eftir tveggja ára undirbúning en þar eru framleiddir svokallaðir harðkorna gúmmísólar og innsólar. „Við erum að framleiða Green Diamond harðkornagúmmísóla sem gefa betra grip en aðrir sólar við blautar og sleipar aðstæður," segir Óskar og vísar til dekkja með sams konar nafni. Margra ára þróunarvinna að baki Meðal þeirra sem keypt hafa sóla af Green Diamond er íslenska félagið Cintamani. „Skúli (J. Björnsson) í Sportís var okkar fyrsti viðskiptavinur og er að selja skó með Green Diamond sólum." Þessu til viðbótar framleiðir fyrirtækið innsóla með vélum frá Ítalíu meðal annars fyrir hið heimsþekkta vörumerki Ecco. Aðspurður um tilurð sólanna segir Óskar að hann hafi byrjað að vinna að hugmyndinni um síðustu aldamót. „Þannig að þetta hefur tekið nokkurn tíma. Við farnir að vinna með og þróa þessa vöru með mörgum af þekktust skómerkjum heims, þar á meðal Nike og Adidas," segir Óskar og bætir við: „Þettta er búið að taka tíma og það má segja að það sé farið að rúlla núna." Aðspurður hvað hafi rekið stjórnendur fyrirtækisins til Kína segir Óskar að ekki hafi verið um annan stað að velja. „Kína ræður yfir 70 prósentum af allri skóframleiðslu í heiminum og hér eru stærstu skóverksmiðjur í heimi. Það eru um 10-15 þúsund skóverksmiðjur hér sem framleiða átta milljarða para á ári þannig að þetta er gríðarstór markaður. Við erum hins vegar með tvær vörur sem við framleiðum einir í Kína og þetta lítur mjög vel út og það er mikið að gera." Þurfum að bæta við vélum og mannskap Green Diamond er með um 40 manns í vinnu á vöktum og verksmiðja fyrirtækisins, sem er í um eins og hálfs tíma fjarlægð frá Hong Kong, er keyrð allan sólarhringinn. „Við erum að framleiða um 10 þúsund pör af innsólum á dag og við gerum ráð fyrir að framleiðsla á innsólum fari í 100 þúsund á dag á næsta ári," segir Óskar. Þá segir hann fyrirtækið vera að skoða samninga við nokkur stór skófyrirtæki varðandi kaup á harðkornasólum. Óskar segir erfitt að nefna einhverjar samningstölur í því samhengi en hlutirnir líti mjög vel úr. Það verði að koma í ljós hvað komi út úr því. Óskar býr sjálfur skammt frá verksmiðjunni og segir eigendur fyrirtækisins farna að skoða það að stækka hana. "Við settum inn nokkrar vélar í byrjun og það er greinilegt að eftirspurn og áhugi er mikill og við þurfum því að bæta við vélum og mannskap á næstunni," segir Óskar. Björvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra er nú í opinberri heimsókn í Kína og heimsótti hann meðal annars verksmiðju Green Diamond. „Ráðherra kom ásamt Gunnari Snorra Gunnarssyni sendiherra og viðskiptasendinefnd og skoðaði verksmiðjuna og ég held að allir hafi verið ánægðir," segir Óskar. Meðal kjölfestufjárfesta í Green Diamond International ásamt Óskari eru Árni Þór Árnason, oft kenndur við Austurbakka, og Kjalar, félag sem er að meirihluta í eigu Ólafs Ólafssonar, sem kenndur er við Samskip.
Mest lesið Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Viðskipti erlent Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Viðskipti innlent Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Viðskipti innlent Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Fleiri fréttir „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Sjá meira