Vodafone tekur 35 nýja GSM senda í notkun 27. apríl 2008 16:40 Vodafone er að taka 35 nýja GSM senda í notkun.
Fjórðungur þeirra GSM senda sem ráðgert er að tæknimenn Vodafone setji upp á árinu er nú þegar kominn í notkun. Alls hafa 35 nýir GSM sendar verið gangsettir um allt land og tryggt GSM samband á fjölmörgum svæðum sem ekki höfðu notið slíkrar þjónustu fyrr. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. „11 nýir GSM sendar voru gangsettir í byrjun vikunnar en aldrei hafa fleiri sendar verið gangsettir í einni og sömu vikunni. Flestir þessara senda eru á Vestfjörðum, t.d. í Súgandafirði, á Bolungarvík og Ísafirði en einnig voru nýir sendar gangsettir á Norðurlandi, t.d. á Siglufirði, Ólafsfirði og Skollahnjúk í S-Þingeyjarsýslu. Meðfylgjandi myndir voru hins vegar teknar í Vestmannaeyjum, en þar voru settir upp tveir sendar sem tryggja GSM samband langt á haf út og styrkja sambandið í Eyjum. Þá var nýr sendir gangsettur í Flatey á Breiðafirði fyrir fáeinum dögum og annar á Klakki við Grundarfjörð. Sá síðarnefndi tryggir þjónustu m.a. í Kolgrafafirði og við Kvíabryggju sem hingað til hefur ekki verið í GSM sambandi. Sams konar bylting hefur orðið á mörgum öðrum svæðum á landinu á þessu ári. Til dæmis er GSM samband nú komið á Kjöl og Sprengisand, þrír nýir sendar tryggja nú GSM samband í Fljótum - Siglfirðingum til mikillar ánægju, Gemlufallsheiði (milli Flateyrar og Þingeyrar) komst í GSM samband fyrir skemmstu þegar nýr sendir var gangsettur í grennd við Holt í Önundarfirði - og nýr langdrægur sendir á fjallinu Strúti tryggir GSM samband á Arnarvatnsheiði, vestanverðum Langjökli og í umlykjandi sveitum. Þá komst Hólasandur, norðan Mývatns, í GSM samband í fyrsta sinn á dögunum og áfram mætti telja. Vodafone mun halda uppbyggingunni áfram út árið og á næstu vikum munu íbúar á völdum svæðum finna áþreifanlega breytingu. Uppsetning á langdrægum sendi á Bolafjalli við Bolungarvík er ráðgerð á næstu dögum en langdrægu sendarnir eiga að tryggja GSM samband í allt að 100 km á haf út, líkt og nýir sendar á Húsavíkurfjalli og Steinnýjastaðafjalla (ofan Skagastrandar) gera nú þegar. Ofangreind uppbygging hefur nú þegar leitt til þess, að viðskiptavinir Vodafone geta notað GSM símann sinn á fleiri stöðum en aðrir. Rétt er þó að taka fram, að allir GSM notendur hringt neyðarsímtöl í 112 þar sem GSM þjónusta er á annað borð í boði. "
Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira