Lítið lát á veikingu krónunnar, tvöfaldur markaður í augsýn 23. desember 2008 11:57
Lítið lát virðist á veikingu krónunnar og hefur gengi hennar gagnvart evru lækkað um 1,2% það sem af er degi þegar þetta er ritað (kl.10:20). Hefur krónan lækkað um 17% gagnvart evru á hálfum mánuði. Samhliða þessari þróun virðist markaður með krónu erlendis hafa lifnað við að nýju. Til að mynda hafa viðskipti verið nokkur með evru-krónu gengiskrossinn í miðlunarkerfi Reuters undanfarna daga eftir algera þurrð á þeim markaði fyrst eftir endurflot krónu í desemberbyrjun. Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að enn sem komið er eru þessi viðskipti þó aðeins brot af umfangi þeirra fyrir hrun bankanna í októberbyrjun. Munur á gengi krónu gagnvart evru á innlendum markaði og þeim erlenda hefur einnig minnkað undanfarið, ef marka má upplýsingar Reuters. Hefur evran lækkað úr 300 kr. í 200 kr. á hálfum mánuði í kerfi Reuters en á sama tíma hefur verð evru í krónum hækkað úr 146 í 173 á innlendum markaði. Þessi þróun hlýtur að vera Seðlabanka töluvert áhyggjuefni. Eftir góðan byr í segl krónunnar fyrst eftir endurflot hennar með höftum hefur sigið verulega á ógæfuhliðina. Rétti krónan ekki úr kútnum að nýju í bráð verður verðbólguþrýstingur meiri á næstunni, erfiðara að lækka vexti og fyrirtæki jafnt sem heimili munu þurfa að glíma við þyngri skuldabyrði.Bregði ekki til betri vegar á næstunni gæti farið svo að bankinn þurfi að grípa til annarra meðala en hingað til hefur verið beitt, þar sem helsta markmið aðgerðaráætlunar yfirvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, að ná fram stöðugleika á gjaldeyrismarkaði og styrkja gengi krónu, er annars í hættu.Ýmsar skýringar kunna að vera á þessari þróun. Þótt erlendir fjárfestar megi ekki færa eignir sínar úr krónum í aðrar myntir er þeim heimilt að taka til sín fjármagnstekjur, þar með talið vaxtagreiðslur. Slíkar greiðslur nema nú talsverðum fjárhæðum, og á jafn smáum gjaldeyrismarkaði og við búum nú myndar útstreymi af þessum sökum þrýsting á gengi krónu. Einnig verður að hafa í huga að ýmis innlend fyrirtæki búa enn við talsverða fjármögnunarþörf í evrum.Ef þessi fyrirtæki safna í sarpinn þeim gjaldeyri sem til þeirra berst í því skyni að standa straum af afborgunum erlendra lána í stað þess að selja hann á gjaldeyrismarkaði getur það dregið talsvert úr framboði gjaldeyris.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Fleiri fréttir B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Sjá meira