Spá nánast engum hagvexti á þessu og næsta ári 28. maí 2008 14:24 Ingólfur Bender er forstöðumaður greiningardeildar Glitnis.
Greinginardeild Glitnis segir í nýrri þjóðhagsspá sinni að tveggja ára stöðnunarskeið í íslensku efnahagslífi sé hafið og á því tímabili muni hagkerfið ná jafnvægi eftir hraðan hagvöxt og þenslu síðustu ára. Því er spáð að hagvöxtur verði nánast enginn á þessu og næsta ári samhliða því sem verðbólga muni hjaðna og viðskiptahallinn minnka. Í spánni segir enn fremur að áhrif lánsfjárkreppunnar hafi verið víðtæk og langvinn. „Hægt hefur á hagvexti á heimsvísu af þeim sökum. Þá er olíu- og hrávöruverð afar hátt í sögulegu samhengi. Í ofanálag er hagkerfið að takast á við endalok umfangsmikilla stóriðjuframkvæmda og niðurskurð aflaheimilda. Það er því margt sem dregur niður hagvöxtinn hér á landi um þessar mundir,“ segir greiningardeild Glitnis. Enn fremur er bent á að innlend eftirspurn dragist saman en á móti batni vöruskiptahallinn. Gerir bankinn ráð fyrir að viðskiptahalli verði ríflega 14 prósent af landsframleiðslu á þessu ári en minnki í tæp 10 prósent strax á næsta ári. Hallinn verði það sem má kalla sjálfbær, 5-6 prósent, við upphaf nýs áratugar. Telur verðbólguskot verða skammvinnt Þá telur greiningardeildin að núverandi verðbólguskot verði skammvinnt og að hratt muni draga úr verðbólgu þegar líður á þetta ár og í upphafi ársins 2009. Enn fremur er gert ráð fyrir að 1,6 prósenta atvinnuleysi verði á árinu og fjögur prósent í upphafi nýs áratugar. „Minnkandi eftirspurn á vinnumarkaði mun að okkar mati draga úr launaskriði, og spáum við öllu hófsamari hækkun launa á spátímanum en verið hefur undanfarin ár," segir greiningardeildin. Hún gerir enn fremur ráð fyrir að það fari að rofa til á mörkuðum með haustinu og að gengishækkun krónu fylgi í kjölfarið. Gengisvísitalan verði 142 yfir árið og 128 á því næsta. Þá telur bankinn að fjögurra ára hækkunarferli stýrivaxta sé lokið. „Við spáum því að Seðlabankinn lækki stýrivexti í september, og að í árslok verði vextir 14,75%. Við reiknum með að vextir verði lækkaðir hratt á næsta ári eftir því sem hægist um í efnahagslífinu, einkaneysla dregst saman og bati verður á utanríkisviðskiptum. Þá teljum við að vextir verði 8% í lok næsta árs," segir Glitnir. Hagvöxtur glæðist árin 2010 og 2011 Greiningardeildin segir svo að hagvöxtur muni glæðast talsvert á árunum 2010 og 2011. Þá leggist á eitt vöxtur innlendrar eftirspurnar og hagfelld utanríkisviðskipti. Reikna megi með því að lánsfjárkrísan verði þá frá og hagvöxtur hraðari á heimsvísu. Býst greiningardeildin við nærri fjögurra prósenta hagvexti árið 2010 og nærri fimm prósent árið 2011.
Mest lesið Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fá að kaupa Pei og Motus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Sjá meira