Deilt um umboð stjórnarformanns til tugmilljóna viðskipta 5. mars 2008 15:48 Deilt er um hvort Rúnar Sigurpálsson hafi haft umboð til að framkvæma tugmilljónaviðskipti fyrir hönd Estia.
Ágreiningur er uppi um hvort Rúnar Sigurpálsson, fyrrverandi stjórnarformaður fjárfestingafélagsins Estia, hafi haft umboð til að framkvæma tugmilljóna viðskipti fyrir hönd félagsins í september á síðasta ári. Tapið af þeim viðskiptum nemur 40 milljónum. Það er deilt um hvort Rúnar hafi haft umboð til að kaupa hlutabréf í Kaupþingi og fleiri íslenskum félögum fyrir tugmilljónir á framvirkum samningum í september á síðasta ári. Þetta staðfestir Steinþór Valur Ólafsson, stjórnarmaður Estia, í samtali við Vísi. "Verið er að skoða hvort hann hafi haft þetta umboð og hvort eitthvað hafi klikkað hjá SPRON Verðbréfum sem sáu um viðskiptin," segir Steinþór Valur. Hann hefur sent inn fyrirspurn til SPRON Verðbréfa um málið og bíður svars. Rúnar Sigurpálsson, sem er forstöðumaður á fjármálasviði Baugs, segir að hann hafi ekki aðhafst neitt rangt í þessu máli. "Stjórnarmenn og framkvæmdastjóri vissu af þessu allan tímann. Þetta voru bara venjuleg viðskipti," segir Rúnar. Arnar Már Snorrason, framkvæmdastjóri Estia, vildi ekki tjá sig um hvort hann hefði vitað af þessum viðskiptum Rúnars og vísaði á Steinþór. Það sama gerði Kristján Ásgeirsson stjórnarmaður þegar Vísir ræddi við hann. Jón Hallur Pétursson, framkvæmdastjóri SPRON Verðbréfa, sagði í samtali við Vísi að það væru engar viðræður í gangi við Estia. "Við höfum átt góð samskipti við félagið í gegnum tíðina og vonum að þau haldi áfram," sagði Jón Hallur. Aðspurður hvort hann teldi að SPRON Verðbréf hefðu gert mistök í fyrrgreindu máli sagði hann svo ekki vera. SPRON er stærsti hluthafi Estiu í gegnum eignarhaldsfélag sitt Steinsnes sem á 32% í félaginu. Aðrir stórir hluthafar eru til að mynda frændurnir Kristján Vilhelmsson og Þorsteinn Már Baldvinsson, oft kenndir við Samherja.
Mest lesið JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Viðskipti erlent Fleiri fréttir Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Sjá meira