Viðskipti innlent

Landsbankinn spáir 14,7% verðbólgu

Greiningadeild Landsbankans spáir 1% hækkun verðlags í ágúst. Gangi spáin eftir eykst 12 mánaða verðbólga í 14,7% samanborið við 13,6% í júlí. Greiningadeild telur að 12 mánaða verðbólga nái hámarki í ágúst en að hratt dragi úr verðhækkunum þegar útsölulok verði gengin yfir og krónan hafi brotist út úr gengislækkunarfasa síðustu mánaða.

Greiningadeild gerir ráð fyrir að verðbólga mælist um 12% frá upphafi til loka þessa árs en stærstur hluti þeirrar hækkunar sé þegar kominn fram. Verðbólga næstu 12 mánuði verði ríflega 5% að því gefnu að forsendur okkar um launa- og gengisþróun gangi eftir. Samkvæmt spá Greiningadeildar verður verðbólga í námunda við verðbólgumarkmiðið í lok árs 2009.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×