Viðskipti innlent

Hekla flytur alla notuðu bílana í Árbæinn

Öll starfsemi Bílaþings Heklu hefur verið sameinuð á 1.600 fermetra athafnasvæði að Kletthálsi 1B í Árbæ undir nýju nafni - Hekla notaðir bílar. Í fréttatilkynningu frá Heklu kemur fram að af því tilefni verði haldin vegleg opnunarhátíð á nýja staðnum á morgun þar sem boðið verður upp á 20% afslátt á öllum notuðum bílum og hagkvæma fjármögnunarmöguleika í erlendri mynt.

„Aðstaðan á Laugaveginum var orðin allt of lítil og því lá beint við að færa út kvíarnar á Kletthálsi, þar sem við höfum verið með sölu á notuðum bílum í nokkur ár, og sameina þar alla starfsemi okkar með notaða bíla," segir Jón Trausti Ólafsson, markaðsstjóri HEKLU. Hann segir mikið hagræði skapast af því að hafa alla notuðu bílana á sama stað auk þess sem aukið svigrúm verði nú fyrir nýju bílana á Laugaveginum.

Athafnasvæði Heklu á Kletthálsi er um 1.600 fermetrar að flatarmáli, með tveimur þjónustubyggingum sem eru samtals um 900 fermetrar að stærð, og hefst starfsemin þar formlega á slaginu 12 á morgun.

„Í tilefni dagsins verðum við með opið til kl. 22:00 annað kvöld og bjóðum öllum sem líta við hjá okkur upp á smá hressingu," segir Daði Harðarson, sölustjóri hjá Hekla notaðir bílar. „Við ætlum einnig að gefa 20% afslátt á öllum notuðum bílum hjá Heklu og stendur það tilboð fram yfir helgi. Jafnframt erum við búin að tryggja að viðskiptavinum okkar standi til boða mjög hagkvæm lánafyrirgreiðsla hjá fjármögnunarfyrirtækjum, eða sem nemur allt að 80% fjármögnun í erlendri mynt."

Á morgun bílaflutningavagni Heklu breytt í sannkallaða glæsireið í tilefni dagsins. Skreyttur vagninn mun aka með farm af notuðum bílum undir dillandi músík og lúðrablæstri frá höfuðstöðvum fyrirtækisins á Laugavegi kl. 11:00 á morgun áleiðis upp á Klettháls með viðkomu á nokkrum stöðum á leiðinni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×