Árleg afkoma versnar um hálfan milljarð fyrir hverja tíu punkta í vaxtamun 26. maí 2008 22:01
Ef lántökuheimild ríkissjóðs sem lögð er til í nýju frumvarpi fjármálaráðherra er nýtt að fullu mundi árleg afkoma ríkissjóðs versna um 500 milljónir króna fyrir hverja tíu punkta sem munar á vöxtum sem ríkið greiðir og þeim sem hann fær hjá Seðlabankanum. Þetta kemur fram í umsögn fjármálaráðuneytisins um frumvarpið. Eins og fram kom fyrr í kvöld hefur Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra lagt fram frumvarp á Alþingi sem heimilar honum fyrir hönd ríkissjóðs að taka allt að 500 milljarða króna lán á þessu ári í íslenskum krónum eða erlendri mynt. Þá má ríkissjóður endurlána Seðlabanka Íslands þann hluta sem tekinn verður að láni í erlendri mynt. Til skoðunar að efla gjaldeyrisforða frekar Í greinargerð með frumvarpinu er bent á að ráðist er í frumvarpsgerðina vegna þeirrar erfiðu stöðu sem sé á fjármálamörkuðum. Þessi lántaka er til viðbótar tvíhliða gjaldeyrissamningum sem Seðlabankinn gerði nýverið við seðlabanka Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur sem hver um sig veitir Seðlabankanum aðgang að allt að 500 milljónum evra gegn íslenskum krónum. Í greinargerðinni segir enn fremur að erlend lántaka ríkissjóðs í því skyni að efla gjaldeyrisforðann enn frekar sé til athugunar. Lántökuheimildin í frumvarpi fjármálaráðherra miðar að tvennu. Annars vegar er gert ráð fyrir að nýta megi heimildina til töku erlends láns sem endurlánað verði Seðlabanka Íslands í því skyni að efla gjaldeyrisforða bankans. Hins vegar er gert ráð fyrir að nýta megi heimildina til aukinnar útgáfu ríkisverðbréfa á innlendum markaði, verði þess talin þörf í því skyni að styrkja innlendan peninga- og gjaldeyrismarkað. Óvissa um lánakjör Í umsögn fjármálaráðuneytisins um kostnað vegna þessarar lántöku segir að vegna breytilegra aðstæðna á lánsfjármörkuðum ríki nokkur óvissa um hvaða lánakjör verða í boði fyrir ríkissjóð þegar lántökuheimildin verður nýtt. Það fer meðal annars eftir því hvernig staða á lánsfjármörkuðum þróast á næstu mánuðum og hvenær lán verða tekin. Áhrif lántökunnar á ríkissjóð eru sögð felast fyrst og fremst í þeim mismun á vöxtum sem ríkissjóður greiðir af lántökunni og vaxtatekjum af endurláni til Seðlabankans eða af því fé sem aflað verður með útgáfu ríkisverðbréfa á innlendum markaði. ,,Í ljósi markaðsaðstæðna má fastlega gera ráð fyrir því að vaxtagjöld af lántöku ríkissjóðs verði hærri en vaxtatekjur. Ef lántökuheimildin yrði nýtt að fullu mundi árleg afkoma ríkissjóðs versna um 500 m.kr. fyrir hvert 0,1% (10 punkta) í vaxtamun," segir í umsögninni. Þetta þýðir að ef munurinn á vöxtunum sem ríkið greiðir og þeim tekjum sem ríkið fær af endurláni til Seðlabankans er eitt prósent versnar afkoma ríkissjóðs um fimm milljarða á ári. Frumvarpið í heild sinni má sjá hér.
Mest lesið Taka upp gjaldskyldu við Smáralind Neytendur Taka ekki upp gjaldskyldu við Kringluna Neytendur Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Viðskipti innlent Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Viðskipti innlent Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Viðskipti erlent Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Viðskipti innlent Vinnupallar bjóða heildarlausnir fyrir öruggari framkvæmdir Samstarf Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Viðskipti innlent Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Viðskipti innlent Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Sjá meira