Magnús á enga peninga en mörg kort 19. apríl 2008 10:05 Magnús Kristinsson er í viðtali við 24 Stundir í dag. MYND/Heiða „
Ég á enga peninga en ég á nokkuð mörg kort," segir viðskiptamaðurinn Magnús Kristinsson í viðtali við 24 Stundir í dag. Magnús er stórskemmtilegur í viðtalinu og viðurkennir meðal annars að salan á Gnúpi hafi verið erfið. Magnús er útgerðarmaður frá Vestmannaeyjum sem flýgur með þyrlu á milli lands og eyja sem honum þeykir afskaplega vænt um. Hann er m.a spurður hvort boginn hafi verið spenntur of hátt í tengslum við Gnúp sem var leystur upp fyrir skömmu. „Boginn var spenntur of hátt síðustu þrjú til fjögur árin. Menn lentu í kröppum dansi en sluppu þokkalega fyrir horn. Það voru erfiðir dagar þegar við seldum Gnúp sem hafði verið hugarfóstur okkar. Já, ég viðurkenni að þetta var erfitt," segir Magnús. Hann segist einnig ekki hafa neina hæfileika til þess að svara spádómum um hvort allt kunni að fara á versta veg hjá fyrirtækjum landsins og þar á meðal sínum eigin. Magnús var varaformaður stjórnar Straums Burðaráss um tíma þar sem kastaðist í kekki milli hans og Björgólfs Thors Björgólfssonar. Hann er spurður hvort enn sé kalt á milli þeirra. „Ég hef marga hildi háð, bæði í sjávarútvegsgeiranum og fjármálageiranum. Í sjálfu sér var engin illska á milli okkar Björgólfs Thors. Við gengum einfaldlega ekki í takt á þessum tíma og slitum samskiptum sem urðu til í gegnum Straum. Við höfum aldrei rætt þetta mál eða farið í gegnum það og munum ekki gera. Þetta mál er frá."
Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira