Viðskipti innlent

Félögum í úrvalsvísitölunni fækkar í 12

Útlit er því fyrir að félögum á aðallista kauphallarinnar fækki um fjögur á næstunni og að félögunum í úrvalsvísitölunni fækki úr 14 niður í 12.

Fjallað er um málið í Vegvísi greiningar Landsbankans en þar segir að stjórn Flögu Group hefur óskað eftir því við kauphöllina í að hlutir félagsins verði teknir úr viðskiptum.

Á miðvikudaginn bárust fréttir af því að stjórn FL Group hygðist leggja til við hluthafafund að félagið yrði afskráð og auk þess birtist tilkynning um viðræður Kaupþings og SPRON um samruna.

Tryggingamiðstöðina er í afskráningarmeðferð eftir yfirtökutilboð FL Group og hverfur væntanlega úr viðskiptum fljótlega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×