Sálumessa á miðnætti 4. desember 2008 06:00 Garðar Cortes leiðir Óperukórinn og Sinfóníuhljómsveit í Sálumessu Mozarts í nótt.
Óperukórinn í Reykjavík mun verða með sérstaka og eftirminnilega tónleika í Langholtskirkju í nótt. Þar verður flutt Requiem eftir Wolfgang Amadeus Mozart og hefst flutningurinn kl. 00.30, það er upp úr miðnætti. Það er orðin árleg hefð fyrir því að Óperukórinn flytji Mozart-Requiem á þessum tíma. Sú hefð hefur einnig orðið að tónleikarnir eru helgaðir minningu tónlistarmanna sem látist hafa á undanförnu ári, en þeir eru Árni Scheving, Gunnar Reynir Sveinsson, Úlrik Ólason, Nora Kornblueh, Kristján Kristjánsson og Ásgeir Sverrisson. Þannig er flutningurinn ekki aðeins lofgjörð og harmur helgaður tónskáldinu heldur ekki síður þeim ágætu samferðamönnum úr tónlistarmannastétt sem horfnir eru á liðnum misserum. Flytjendur eru Óperukórinn í Reykjavík ásamt sinfóníuhljómsveit undir stjórn Garðars Cortes, en meðal einsöngvara í flutningi þessa höfuðverks Mozart að þessu sinni eru tvö börn hans: Nanna María Cortes sópran og Garðar Thór Cortes tenór. Aðrir einsöngvarar eru þau Sesselja Kristjánsdóttir mezzó-sópran og Davíð Ólafsson bassi. Ástæða þessa sérstæða tónleikatíma, kl. 00.30 aðfaranótt 5.desember, er sú að verkið er flutt á dánarstundu tónskáldsins, Mozarts, sem lést laust eftir miðnætti aðfaranótt 5. des. 1791, aðeins 35 ára að aldri. Vitandi að hverju stefndi, lagði hann síðustu krafta sína í að reyna að ljúka tónsmíðinni, en það tókst ekki, og eru því lokakaflar verksins samdir af nemanda hans Süßmayr. Tónleikum Óperukórsins mun ljúka á síðustu tónunum sem Mozart samdi og skráði, þannig mun þetta einstaka verk deyja út á þeim tónum sem hann síðast setti á blað. pbb@frettabladid.is
Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Ekkert offors hjá Fors Lífið Kát á kynfræðslukarnivali Menning Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið Menningarsprautur í hvísluleik Menning Bombur á Barokki á klúbbnum Lífið Fleiri fréttir Menningarsprautur í hvísluleik Kát á kynfræðslukarnivali Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Ástfangin pör á Djöflum Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira