Ekki um neyðaraðstoð að ræða 16. maí 2008 12:00
Seðlabanki Íslands hefur tryggt sér aðgang að 1,5 milljarði evra með samningum við seðlabanka Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar. Samningurinn eykur svigrúm Seðlabankans til að lána íslensku viðskiptabönkunum lán í evrum. Um er að ræða þrjá aðskilda tvíhliða samninga við Seðlabanka Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar. Þessir bankar eru allir utan við myntbandalag Evrópu en Seðlabanki Finnlands er í myntbandalaginu og kemur ekki að þessum samningum. Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar Seðlabankans, segir ekki víst að Seðlabankinn þurfi að nýta þetta fé, en aðgangurinn er tryggður ef á þurfi að halda. Fyrstu viðbrögð markaðarins við þessu hafa verið jákvæð. Davíð sagði að það væri of snemmt að fullyrða um hver áhrifin af aðgerðunum verði, dagurinn sé enn ungur og margt breytist á markaði, en fram að þessu hefði gengið styrkst um 4-5 prósent í morgun og skuldatryggingaálag á ríkið hefði minnkað á bilinu 60-100 punkta. Samningarnir þrír eru upp á 1,5 milljarða evra eða 175 milljarða íslenskra króna, sem Davíð segir vera tæplega tvær Kárahnjúkavirkjanir. Hann segir þetta aðeins fyrsta skrefið af nokkrum til að styrkja fjármálakerfið en unnið sé að því að auka gjaldeyrisforða Seðlabankans. Ekkert sem bendir til að við þurfum að nota þessa peninga Aðspurður um þær fullyrðingar danskra fjölmiðla að um neyðaraðstoð væri að ræða sagði Davíð að því færi fjarri. „Ég sannfærður um að danski seðlabankinn mundi sjálfur ekki orða það svo þó ég sé ekki að leggja honum orð í munn," sagði Davíð. Hann benti á að í yfirlýsingum bankanna þriggja kæmi fram að vilji þeirra væri að styrkja svigrúm og viðbúnaðarmöguleika Seðlabankans en ekki væri með neinum hætti litið svo á að um neyðaraðstoð væri að ræða. „Það er alveg rétt að hafa í huga að það er á þessu augnabili ekkert sem bendir til þess í sjálfu sér að við munum nokkurn tíma nota þessa peninga," sagði Davíð.
Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent