Erlendur fjárfestir kaupir fyrir 5,6 milljarða í Alfesca 27. maí 2008 21:19 Ólafur Ólafsson er stjórnarformaður Alfesca og stærsti hluthafinn.
Stjórn Alfesca hefur tilkynnt að náðst hafi samkomulag við sterkan erlendan fjárfesti um að hann kaupi nýtt hlutafé í félaginu að verðmæti 5,6 milljarða íslenskra króna og eignist þar með 12,6% hlut í félaginu. Alfesca sendi frá sér svohljóðandi tilkynningu til Kauphallarinnar í kvöld: Stjórn Alfesca er það sönn ánægja að tilkynna að undirrituð hefur verið viljayfirlýsing um að erlendur fjárfestir muni fjárfesta fyrir 48.3 milljónir evra í nýju hlutafé í félaginu. Þessi fjárfesting innsiglar þær nánu og uppbyggilegu viðræður sem hafa átt sér stað á milli Alfesca annars vegar og hins væntanlega hluthafa hins vegar um nokkra hríð. Vilji aðila stendur til að fjárfestingin verði með þeim hætti að keypt verða í áskrift 850,000,000 nýrra hluta sem hver er að nafnverði ein íslensk króna, og er áskriftarverðið á genginu 6,45 fyrir hvern hlut, sem felur í sér 6,9% afslátt miðað við gengi hluta í Alfesca við lok viðskipta föstudaginn 23. maí 2008. Um er að ræða, ef til kemur, 12,6% af heildarhlutafé Alfesca. Í kjölfar þess að nýlega voru samþykkt á Alþingi lög um breytingu á lögum um tekjuskatt, sem m.a. fela það í sér við ákveðnar aðstæður að felld er niður skattlagning söluhagnaðar hlutabréfa, þá mun fjárfestirinn hafa uppi áform um að stofna eignarhaldsfélag hér á landi sem mun halda utan um hlutafjáreignina í Alfesca. Alfesca býr vel að því að hafa sterkan efnahagsreikning og var eiginfjárhlutfall félagsins 47,4% 31. mars sl. Þegar við bætist nýtt fjármagn með þessu nýja hlutafé er ljóst að Alfesca er vel í stakk búið til að þróa félagið áfram og skoða tækifæri til að taka yfir önnur fyrirtæki, þrátt fyrir að aðstæður á markaði séu almennt erfiðar. Vonir standa til að gengið verði frá þessari fjárfestingu innan fárra vikna.
Mest lesið Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fá að kaupa Pei og Motus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Sjá meira