Spá 15,75% stýrivöxtum Jón Hákon Halldórsson skrifar 5. maí 2008 12:16 Bankastjórn Seðlabankans ásamt aðalhagfræðingi. Mynd/ GVA
Greining Glitnis spáir því að Seðlabankinn hækki vexti um 0,25 prósentustig til viðbótar, í 15,75%, á næsta vaxtaákvörðunardegi bankans 22. maí næstkomandi. Verðbólga í apríl mældist 11,8% á ársgrundvelli og hefur ekki verið meiri í tvo áratugi. Greining Glitnis segir að útlit sé fyrir að Seðlabankinn hafi vanmetið verðbólgu á öðrum fjórðungi ársins um 1,5 til 2 prósentustig í þjóðhagsspá bankans sem birt var 10. Apríl síðastliðinn. Búast við stýrivaxtahækkunGreining Glitnis telur því að Seðlabankinn muni hækka vexti á næsta fundi sínum til að veita verðbólguvæntingum trausta kjölfestu og varna enn frekari hækkun verðlags. Greining Glitnis gerir jafnframt ráð fyrir að sú stýrivaxtahækkun marki endalok vaxtahækkunarferlis bankans sem staðið hefur yfir í fjögur ár. Vísbendingar séu þegar komnar fram um að farið sé að hægja á vexti innlendrar eftirspurnar, bæði einkaneyslu og fjárfestingu heimila sem fyrirtækja. Hægt hafi á ársvexti greiðslukortaveltu, innflutningur bifreiða og varanlegra neysluvara fari nú hjaðnandi, kaupmáttur launa hafi dregist saman og tiltrú neytenda á núverandi efnahagsástand hafi minnkað. Þá ríki nánast verðstöðnun á fasteignamarkaði og velta á honum hafi dregist mikið saman auk þess sem nýjum íbúðalánum hafi fækkað mikið á milli ára. Vaxtalækkun í september Greining Glitnis býst við að Seðlabankinn hefji vaxtalækkunarferli sitt í september þegar skýr merki séu komin fram um kólnun hagkerfisins og að farið verði að draga úr verðbólguþrýstingi. Spáir Glitnir því að stýrivextir verði 14,75% í lok þessa árs. Greining Glitnis reiknar með að vextir verði lækkaðir hratt á næsta ári eftir því sem dragi úr verðbólguþrýstingi og hjól efnahagslífsins fari að snúast að nýju, að verðbólgumarkmið bankans náist um mitt árið og að vextir standi í 8% í árslok 2009. Áður spáði Greining Glitnis því að vextir yrðu 14,5% í lok þessa árs og 8% í lok þess næsta. Krónan helst veik um sinnGreining Glitnis segir að eftir snarpa gengislækkun krónunnar í mars og umtalsverðar sveiflur á gengi hennar í þeim mánuði hafi verulega dregið úr sveiflum á genginu. Skert aðgengi innlendra fjármálastofnana að erlendu lánsfé hafi valdið þrengingum á innlendum gjaldeyrisskiptamarkaði undanfarnar vikur, og haldi það gengi krónunnar lágu um þessar mundir. Við það bætist að innlendir og erlendir fjárfestar sæki lítið í áhættu núna og erfiðar aðstæður séu á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Því sé ekki mikið svigrúm til styrkingar krónunnar á meðan það ástand vari. Evran í 105 í árslok Greining Glitnis spáir því að gengisvísitala krónunnar haldist við núverandi gildi þar til birta taki á fjármálamörkuðum og að gengisvísitala erlendra gjaldmiðla verði að meðaltali 149 á öðrum fjórðungi ársins. Þegar alþjóðlegir lánamarkaðir opnist að nýju muni aðgangur fjárfesta að miklum vaxtamun við útlönd verða greiður og telur Greining Glitnis að krónan muni styrkjast allhratt af þeim sökum. Ógerningur sé hins vegar að tímasetja styrkinguna vegna þeirrar óvissu sem ríki um þróun alþjóðlegra lánsfjármarkaða. Greining Glitnis spáir því að gengisvísitalan standi nærri vísitölugildinu 135 í árslok, Bandaríkjadalur í tæpum 67 krónum og evran í 105 krónum. Í árslok 2009 verði gengisvísitalan í grennd við 126, dollarinn ríflega 62 krónur og evran nærri 98 krónum.
Mest lesið Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Viðskipti erlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Viðskipti innlent Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Viðskipti innlent Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent Fleiri fréttir Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Sjá meira