Viðskipti innlent

Krónan braggast

Krónan hefur tekið kipp og gengi hennar styrkst töluvert í dag.
Krónan hefur tekið kipp og gengi hennar styrkst töluvert í dag.

Það sem af er degi hefur krónan braggast nokkuð eftir veikindi síðustu daga. Gengisvísitalan hefur lækkað um 2,65 stig í morgun og hefur gengið styrkst sem því nemur.

Evran kostar nú rétt rúmar 127 krónur, Bandaríkjadalur er á 81,64 krónur og danska krónan fæst nú á 17.08 krónur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×