Viðskipti innlent

Kaupþing gefur út skuldabréf til fagfjárfesta fyrir ný íbúðalán

Kaupþing hefur ákveðið að bjóða út sérvarin skuldabréf til fagfjárfesta vegna fjármögnunar á nýjum íbúðalánum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.

Bréfin eru til 25 og 40 ára, verðtryggð með föstum vöxtum út lánstímann og skráð á OMX Nordic Exchange. Útboð á þessum bréfum verður að lágmarki einu sinni á hverjum ársfjórðungi.

Kaupþing segir að kjör á nýjum íbúðalánum ráðist af niðurstöðu útboðsins en íbúðalán bankans verða með 0,9 prósenta álagi. Markmið bankans með þessu fyrirkomulagi er að auka gegnsæi í vaxtamyndun á íbúðalánamarkaði.

„Komi til breytingar á vöxtum íbúðalána vegna þessa fyrsta útboðs, verður hún tilkynnt að morgni dags 30. júní og tekur gildi þegar í stað," segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×