Krónan mun áfram eiga erfitt uppdráttar 25. júní 2008 16:35 MYND/Heiða
Greiningardeild Glintis gerir ráð fyrir því að krónan muni eiga erfitt uppdráttar í bráð og að gengi hennar muni áfram einkennast af miklum sveiflum næstu mánuðina. Í nýrri spá greiningardeildarinnar segir að erfiðar aðstæður á alþjóðlegum láns- og lausafjármörkuðum, lítil áhættulyst fjárfesta, slök uppgjör bandarískra fyrirtækja ásamt hækkandi skuldatryggingarálagi á íslenska ríkiðog bankana séu meginorsakir gengislækkunar krónunnar að undanförnu. Telur deildin að þróun gengis muni ráðast af aðstæðum á alþjóðlegum fjármálamörkuðum enn um sinn. Greining Glitnis gerir enn fremur ráð fyrir að krónan fari að styrkjast þegar hilla fari undir lok þessa árs og að hún styrkist hratt þegar aðgengi að erlendu lánsfé eykst að nýju. „Ógjörningur er að tímasetja þær breytingar nákvæmlega fyrirfram. Við reiknum með því að Bandaríkjadalur verði í grennd við 77 krónur í lok þessa árs og evran verði nærri 118 krónum. Í árslok 2009 spáum við aðdalurinn verði tæpar 63 krónur og að evran standi í tæpum 98 krónum," segir í spá greiningardeilarinnar. Hún segir þó helstu óvissuþætti vera tímasetninguna á því hvenær fer að rofa til á alþjóðlegum lánamörkuðum. „Dragist krísan á langinn má reikna með veikari krónu út spátímann en hér er spáð,“ segir greiningardeildin. Spá óbreyttum stýrivöxtum í júlí Greiningardeildin spáir einnig í stýrivexti Seðlabankans og bendir á að verðbólgan nú sé 12,3 prósent. Mikla verðbólgu þessa mánuðina megi rekja til gengislækkunar krónu og hækkunar hrávöruverðs á heimsmarkaði. Telja Glitnismenn að hámarki stýrivaxta sé náð, en þeir eru nú 15,5 prósent, og vænta þess að bankastjórn haldi vöxtum óbreyttum á næsta vaxtaákvörðunarfundi, 3. júlí. „Við spáum því að Seðlabankinn hefji vaxtalækkunarferli sitt í nóvember með 0,50 prósentustiga lækkun vaxta og að stýrivextir verði 15% í árslok. Þá reiknum við með örum vaxtalækkunum á næsta ári eftir því sem hjól efnahagslífsins fara að snúast hægar, einkaneysla dregst saman, bati verður á ytra jafnvægi þjóðarbúsins og dregur úr verðbólguþrýstingi, og að vextir standi í 8% í árslok 2009. Áður spáðum við að vaxtalækkunarferlið hæfist í september á þessu ári og að vextir yrðu komnir í 14,75% í lok árs," segir í spánni. Gild rök fyrir vaxtalækkun fyrr og hraðar Greiningardeilin segir enn fremur að færa megi gild rök fyrir því að rétt væri fyrir Seðlabankann að lækka vexti fyrr og hraðar en spá hennar gerir ráð fyrir, þar sem stýrivextir Seðlabankans bíti mun fastar nú eftir að aðgengi að erlendu lánsfé skertist og vísbendingar séu um að hagkerfið kólni nú mjög hratt. „Með því að halda vöxtum svona háum lengi er bankinn í raun að bregðast við neikvæðum ytri skilyrðum þjóðarbúsins, þ.e. þáttum sem stýrivextir bankans bíta ekki á og með aðgerðum sínum keyrir hann hagkerfið niður í óþarflega mikla lægð. Við teljum þó að Seðlabankamenn líti þróunina öðrum augum en við og að vextir verði því líklega háir lengur en heppilegt væri, segir greiningardeildin að lokum.
Mest lesið Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Viðskipti innlent Wolt sendlar lögðu niður störf Viðskipti innlent Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Viðskipti innlent Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Atvinnulíf Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Viðskipti innlent Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Viðskipti erlent Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Neytendur Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Viðskipti innlent Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Viðskipti innlent Fleiri fréttir Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Sjá meira