Hekla flytur alla notuðu bílana í Árbæinn 25. júní 2008 15:37
Öll starfsemi Bílaþings Heklu hefur verið sameinuð á 1.600 fermetra athafnasvæði að Kletthálsi 1B í Árbæ undir nýju nafni - Hekla notaðir bílar. Í fréttatilkynningu frá Heklu kemur fram að af því tilefni verði haldin vegleg opnunarhátíð á nýja staðnum á morgun þar sem boðið verður upp á 20% afslátt á öllum notuðum bílum og hagkvæma fjármögnunarmöguleika í erlendri mynt. „Aðstaðan á Laugaveginum var orðin allt of lítil og því lá beint við að færa út kvíarnar á Kletthálsi, þar sem við höfum verið með sölu á notuðum bílum í nokkur ár, og sameina þar alla starfsemi okkar með notaða bíla," segir Jón Trausti Ólafsson, markaðsstjóri HEKLU. Hann segir mikið hagræði skapast af því að hafa alla notuðu bílana á sama stað auk þess sem aukið svigrúm verði nú fyrir nýju bílana á Laugaveginum. Athafnasvæði Heklu á Kletthálsi er um 1.600 fermetrar að flatarmáli, með tveimur þjónustubyggingum sem eru samtals um 900 fermetrar að stærð, og hefst starfsemin þar formlega á slaginu 12 á morgun. „Í tilefni dagsins verðum við með opið til kl. 22:00 annað kvöld og bjóðum öllum sem líta við hjá okkur upp á smá hressingu," segir Daði Harðarson, sölustjóri hjá Hekla notaðir bílar. „Við ætlum einnig að gefa 20% afslátt á öllum notuðum bílum hjá Heklu og stendur það tilboð fram yfir helgi. Jafnframt erum við búin að tryggja að viðskiptavinum okkar standi til boða mjög hagkvæm lánafyrirgreiðsla hjá fjármögnunarfyrirtækjum, eða sem nemur allt að 80% fjármögnun í erlendri mynt." Á morgun bílaflutningavagni Heklu breytt í sannkallaða glæsireið í tilefni dagsins. Skreyttur vagninn mun aka með farm af notuðum bílum undir dillandi músík og lúðrablæstri frá höfuðstöðvum fyrirtækisins á Laugavegi kl. 11:00 á morgun áleiðis upp á Klettháls með viðkomu á nokkrum stöðum á leiðinni.
Mest lesið Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Viðskipti erlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Sjá meira