Línuhönnun athyglisverðust á Verki og viti 19. apríl 2008 16:21 Ólafur Þórisson og Helga Jóna Óðinsdóttir hjá Línuhönnun taka við verðlaunum fyrir athyglisverðasta sýningarrýmið hjá Margit Elvu Einarsdóttur, framkvæmdastjóra Verks og vits 2008.
Stórsýningin Verk og vit 2008 er nú í fullum gangi í Laugardalshöll, en þar kynna um 100 sýnendur sem tengjast byggingariðnaði, mannvirkjagerð og skipulagsmálum vörur sínar og þjónustu. Nú síðdegis voru kynntar niðurstöður dómnefndar á vegum skipuleggjenda á vali athyglisverðustu sýningarrýmanna á Verki og viti 2008. „Það var fyrirtækið Línuhönnun sem bar sigur úr býtum. Í umsögn dómnefndar kom fram að stílhreint útlit og einfaldleiki spiluðu listavel saman hjá Línuhönnun ásamt sérstaklega vel unnu markaðsefni. Jafnframt þótti áhersla fyrirtækisins á að kynna starfsfólk sitt ekki síður en fyrirtækið til eftirbreytni. Smekklegt litasamspil, opið og gott rými auk góðs viðmóts starfsfólks fleyttu BM Vallá í annað sæti að mati dómnefndarinnar og fyrirtækið Áltak lenti í þriðja sæti. Þeirra sýningarrými vakti athygli fyrir það að bjóða upp á skemmtilega upplifun gesta við að ganga í gegnum hljóðgöng auk þess sem litasamsetning þótti vel heppnuð. Fyrirtækið Borg hlaut svo sérstaka aukaviðurkenningu fyrir heimilislegt og notalegt sýningarrými sem kynnti vel starfsemi fyrirtækisins auk þess sem viðmót starfsfólks þótti afar gott. Dómnefndina skipuðu Erlendur Örn Fjeldsted byggingatæknifræðingur, Guðmundur Oddur Magnússon, prófessor í grafískri hönnun, Lárus Halldórsson, framkvæmdastjóri hjá Mat Englanna og stjórnarmaður í Ímark, Sólveig Ólafsdóttir, arkitekt hjá Studio Striki, og Elsa Giljan Kristjánsdóttir, sýningarstjóri Verks og vits 2008. Sýningin Verk og vit 2008 var opnuð fyrir almenning í dag, en hún hefur verið opin fyrir fagaðila í byggingariðnaði, mannvirkjagerð og skipulagsmálum frá því á fimmtudag. Mikill fjöldi gesta hefur heimsótt sýninguna og gert er ráð fyrir að aðsókn verði áfram góð um helgina. Verk og vit 2008 er stærsti viðburður sinnar tegundar sem haldinn hefur verið hér á landi. Gestir hafa gert góðan róm að sýningunni telja að sýnendur leggi mikinn metnað í sýningarsvæði sín þar sem sumir hafa reist heilu húsin. Á Verki og viti 2008 eru hátt í 100 sýnendur sem tengjast byggingariðnaði, mannvirkjagerð og skipulagsmálum. Verk og vit verður opin í dag milli klukkan 12 og 18 og á morgun, sunnudag, milli klukkan 12 og 17. Nýbygging Háskólans í Reykjavík, fyrirhugað háskólasjúkrahús, nýr sameinaður Tækniskóli, nýjungar í vetnisvæðingu, risaborvagn frá Ístaki og mörg af stærstu skipulagsverkefnum höfuðborgarsvæðisins eru meðal þess sem fyrir augu ber á Verki og viti. Þá eru kynntar fjölmargar tækninýjungar í byggingariðnaði og mannvirkjagerð auk þess sem sýnd eru nýjustu tæki og tól fyrir áhugamenn jafnt sem atvinnumenn í byggingariðnaði."
Mest lesið Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Viðskipti erlent Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Viðskipti innlent Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Viðskipti innlent Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Fleiri fréttir Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Sjá meira