Samningar í gangi við seðlabanka Englands og Evrópu Friðrik Indriðason skrifar: skrifar 29. maí 2008 14:14 Davíð Oddsson
Samningaviðræður eru nú í gangi við seðlabanka bæði Englands og Evrópu um lántöku til að styrkja gjaldeyrisvarasjóð Seðlabanka Íslands. Sem kunnugt er af fréttum hefur ríkisstjórnin farið fram á 500 milljarða kr. lántökuheimild á alþingi til þessa og reiknað er með að heimildin verði samþykkt í dag. Eins og kunnugt er af fréttum hlupu breskir bankamenn upp til handa og fóta á dögunum er fréttist að Ísland hefði áhuga á lántöku í Seðlabanka Englands. Töldu þeir slíkt fráleitt þar sem íslensku bankarnir væru í bullandi samkeppni við þá bresku í Bretlandi. Má þar nefna Icesave í eigu Landsbankans og Edge í eigu Kaupþings. Samkvæmt heimildum Vísis mun þetta upphlaup bresku bankamannanna þó ekki hafa komið í veg fyrir samningaviðræðurnar. Eftir því sem Vísir kemst næst er skriður á samningaviðræðunum í báðum fyrrgreindum seðlabönkum en það sem helst þvælist fyrir er hve hátt skuldatryggingarálagið eigi að vera á þeim lánum sem tekin verða. Skuldatryggingarálagið hjá íslenska ríkinu er í kringum 200 púnkta þessa stundina. Forráðamenn Seðlabanka Íslands telja þetta örugglega of hátt álag og munu reyna að fá það lækkað í þessum lánasamningum. Til þrautarvara munu þeir reyna að fá lánin með breytilegu skuldatryggingarálagi en það hefur farið lækkandi bæði hjá ríkinu og stóru bönkunum þremur á undanförnum vikum. Eftir því sem Vísir kemst næst munu seðlabankar Englands og Evrópu ekki hrifnir af hugmyndinni um breytilegt álag og vilja frekar hafa það fast á lánunum en þá ef til vill nokkru lægra en það er í dag.
Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fá að kaupa Pei og Motus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Sjá meira